Kirkjuritið - 01.07.1947, Blaðsíða 22
202
Prestastefnan 1947.
Júlí-Okt.
4. Sandfellsprestakall í A.-Skaftafellsprófastsdœmi. Því þjónar
séra Eirikur Helgason prófastur í Bjarnarnesi ásamt sínu
kalli
5. Kálfafellsstaðarprestakáll i A.-Skaftafellsprófastsdæmi, sem
séra Eiríkur Helgason prófastur einnig þjónar.
6. Þinffvallaprestakall í Árnesprófastsdæmi. Þvi ])jóna pró-
fastarnir í Árnes- og Kjalarnesprófastsdæmum.
7. Sta8arhraunsprestaka.ll í Mýraprófastsdæmi, er séra Stefán
Eggertsson þjónar sem scttur prestur.
8. Staðarhólsþiny i Dalaprófastsdæmi er prófasturinn séra
Pétur T. Oddsson þjónar.
9. Breiðabóisstaðarprestakall í Snæfellsnessprófastsdæmi, sem
séra SigurSur M. Pétursson þjónar sem settur prestur.
10. Brjánslœkjarprestakall í .Barðastrandarprófastsdæmi, sem
sóknarpresturinn í Flatey þjónar.
11. Hrafnseyrarprestakall i Vestur-ísafjarðarprófastsdæmi. Því
þjónar nú sóknarpresturinn á Bíldudal.
12. Staðarprestakall í Aðalvík í N.-ísafjarðarprófastsdæmi, er
sóknarpresturinn að Stað í Grunnavík þjónar.
13. Ögurþingaprestakall i N.-ísafjarðarprófastsdæmi, en því
þjónar prófasturinn séra Þorsteinn Jóhannesson Vatnsfirði.
14. Svalbarðsþingaprestakall í N.-Þingeyjarprófastsdæmi. En
þangað er nú settur séra Kristján Bjarnason, sem s. 1-
sunnudag var vigður í Dómkirkjunni.
Það er gleðilegt, að hin óveittu prestaköll eru nú nokkru
færri en undanfarin ár. Prestaköllin, sem njóta þjónustu ná-
grannapresta cru nú aðeins 11, þar sem settir prestar eru i 3
liinna óveittu brauða. Vonandi fer nú smám saman að rætasl
úr hinni tilfinnanlegu prestaeklu í landinu, og er það sann-
arlega vel farið. Mikið veltur þetta þó á því, að allmargir nýir
nemendur bætist í guðfræðideildina á þessu og næstu árum,
og væri vel að prestarnir reyndu að stuðla að því, með við-
ræðum við þá unga menn, er nú stunda menntaskólanám, og
á annan liátt, er þeir teija heppilegan, að feiri námsmenn
legðu stund á guðfræðinám i framtíðinni.
Á þessu ári var hafin smíði Hallgrímskirkju á Skólavörðuliæð.
Var byrjað á kórbyggingunni, og er hún þegar nokkuð kom-
in á veg. Vafalaust mun bygging þeirrar stóru og fögru kirkju
taka allmörg ár. En þess er að vænta, að nú, þegar byggingin
er hafin, verði greiðara um fjársöfnun, bæði af bálfu hins
opinbera og einstakra manna og stofnana. Samskot til kirkju-
byggingarinnar ættu nú að liefjast með auknum krafti uni