Kirkjuritið - 01.07.1947, Side 40

Kirkjuritið - 01.07.1947, Side 40
220 Ásmundur Guðmundsson: Júlí-Okt. Eideni erkibiskup i Uppsölum, Olaf Moe prófessor í Osló, Wentz prófessor frá Pennsylvaniu, Max von Bonsdorff, biskup frá Borgá á Finnlandi, Franklin Fry, yfirmaður lúterskra kirkjufélaga í Vesturheimi, Hanns Lilje, biskup í Hannover, og Hans Meiser, bisk- up í Múnclien. En ritari þessarar framkvæmdanefndar var dr. Michelfelder frá Genf. Mun allra mest hafa á honum mætt. Virtist hugsað fyrir öllu, andlegu og lik- amlegu: Erindum, ræðum, ályktunum, nefndarskipun- um, næturstöðum, vistum og veitingum. II. Dagana fyrir þingið tóku menn að tínast að úr öllum áttum. Við komum íslendingarnir að kvöldi 29. júní og fengum gistingu lijá bankastjórahjónum, er tóku okkur af frábærri alúð. Morguninn eftir héldum við til skrif- stofu þingsins að vitja um skjöl okkar og skilríki, og var þar kliður af mörgum tungumálum, einkum ensku og þýzku. Á næstu grösum voru fundarsalir og matstof- ur í húsakynnum Háskólans og háskólastúdenta inni i unaðslegum trjálundi, þar sem standa líkön nokkurra af andans stórmennum Svia, svo sem Esajasar Tegnérs. Fánar blöktu á báum stöngum, en yfir gnæfðu turn- ar dómkirkjunnar, traustir og tignarlegir. Lundur þurfti sannarlega ekki að fyrirverða sig fyrir fundarstaðinn. Dómkirkjan átti 824 ára afinæli þennan dag. Fyrsta altari hennar var vigt 30. júní 1123, tæpum tveimur ára- tugum eftir það, er erkibiskupsstóll var settur í Lundi og Jón Ögmundsson binn helgi vígður biskupsvígslu. Voru messur þá sungnar i kreptínum, sem er undir kórnum. Nú skyldi minnast þessa atburðar með há- tíðaguðsþjónustu í upphafi kirkjuþingsins. Máttugur og fagur klukknaliljómur kallaði okkur til tíða, og' á skammri stundu fylltist kirkjan fulltrúum og gestum og bæjarbúum. Munu fulltrúar liafa verið 175, en gestir 359, alls frá 27 þjóðum úr öllum heimsálfum, og er það

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.