Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 62

Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 62
242 Benjamín Kristjánsson: Júlí-Okt. Telja má sennilegt um Hall Gizurarson (Hallssonar), að liann liafi skóla haldið meðan liann var ábóti (1224 —’30). En um Brand Jórisson ábóta (1247—’60) af ætt Svífellinga er það beinlínis vitað, að liann hélt skóla á staðnum og kenndi ýmsum ungum mönnum klerk- leg fræði, sem nafnkunnir urðu síðar, t. d- Jörundi Þor- steinssyni Hólabiskupi, Staða-Árna og Runólfi Sig- mundssyni, sem ábóti varð í Þykkvabæ, eftir Brand. Gaf liann þessum lærisveinum sínum þann vitnisburð, að engum hefði hann jafnminnugum lcennt sem Jör- undi, engum, sem jafngóðan hug hefði lagt á nám sitt og Runólfur, en engum jafn hvössum í skilningi og Árna biskupi Þorlákssyni1). Brandur Jónsson ábóti hefir framað sig erlendis og ef til vill verið í skóla þar, því að getið er um útkomu lians 1232 (annálar). Hann þótti liöfuðklerkur sunnan lands um sína daga og var tímum saman officialis i Skállioltsbiskuijsdæmi og seinna biskup á Hólum. Hef- ir hann verið einn hinn lærðasti maður á Islandi í þenna tíma, latinumaður með afbrigðum og ritað kjarnmikla norrænu2). Talið er, að bann liafi þýtt Alexanderssögu fyrir Magnús konung Hákonarson og Makkabeabækurn- ar (Gyðinga sögu) og sumir telja að hann muni eiga talsverðan þátt í Stjórn, sem er elzta Bibliuþýðing á Norðurlöndum3), og bera þessar þýðingar vott um það, að höfundur þeirra liefir verið þaullesinn í öllum kirkju- fræðum sinna tíma. I ágætri ritgerð um Brand Jónsson í Skírni 1923, hefir Tryggvi Þórhallsson fært sterk rök að því, að Brandur muni vera höfundur hinnar merki- B Bisk. I, 68. 2) Sbr. Bisk. I, 681: (Árni biskup) „sá þenna mann (þ. e. Brand) mikinn atgervismann í hagleik og riti, og hvassan í skilningi til bóknáms, svo um þann hlut var hann formenntur flestum mönnum að jöfnu námi“. 3) Ný félagsrit XXIII.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.