Kirkjuritið - 01.04.1977, Side 13

Kirkjuritið - 01.04.1977, Side 13
vinur, eins og faðir hans, Bernt Stöy- len, sem einnig var biskup. Simojoki, erkibiskup Finnlands, má og hiklaust telja til íslandsvina. Hann er virðuleg- ur og traustlegur eins og bjarg, en jafníramt hlýr. Norræna biskupafunainum lauk, eins og fyrr sagði í Skálholti 6. ágúst meo messu og borðhaldi. Heimamönnum á síaðnum verður sá dagur minnisstæð- ur. Þar fór allt fram með virðuleik og innileik. Virtist svo sem gestirnir fögn- uðu mjög bæði stað og stund. G. Ól. Ói. skráði. Þó í litlu sé Þótt fólk geíi tilvist Guðs harla lítinn gaum alla jafna, bæði í orði og á borði, þá hafa þó flestir furðu mikla tilhneigingu til þess aö halda sambanai við hið heilaga, þó í iitlu sé. Þeir fara máske í kirkju, ti! þess að heyra svolítið í orgelinu eða til að virðafyrlr sér helgisiðina. Ellegar, séu þeir í herþjónustu, að þeir gleðjast yfir því að hafa kristinn mann eða prest með sér, þótt þeir geri lítið með boðskap hans. Það er eins og þeir vilji snerta horn altarisins með einum fingri! Þeir viija ekki lóta kaffærast alveg I guðlausum heimi. Þeir vilja halda óbrenglaðri útsýn til einnar, mjög lítillar stjörnu. En í fjöldanum, sem Jesú fylgir, leynist líka önnur manngerð. Honni tilheyra þeir, sem leika tveim skjöldum. Á sunnudögum íara þeir til kirkju og hlýða Guðs orði. Og hver veit nema þeir verði meira að segja snortnir af því um stundarsakir. En óðara en þeir eru komnir aftur í búðina, á verkstæðið eða skrifstofuna á mánudagsmorgni, þá er engu líkara en þeir stilli á aðra bylgjulengd. Þarna líta þeir á fólkið í krlngum sig sem keppinauta, en ekki meðbræður, sem Kristur birtist í. Þarna keppa þeir eftir gróða og gengi, án þess að Ijá því nokkra umhugsun, hvort Guð er með þeim í verki eður ei. Þarna, að loknum störfum, eítast þeir svo við ódýra afþreyingu, en taka sér aldrei andartakshlé til að hugsa um það, að endurnærður verour maðurinn því aðeins, að hann staldri við og spyrji sjálfan sig þessarar spurningar: ,Hvar stend ég, og hvert leiðir þetta mig, allt saman?“ Sjá bls. 12. Dæmisagan um kostnaðinn. 11

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.