Kirkjuritið - 01.04.1977, Blaðsíða 13
vinur, eins og faðir hans, Bernt Stöy-
len, sem einnig var biskup. Simojoki,
erkibiskup Finnlands, má og hiklaust
telja til íslandsvina. Hann er virðuleg-
ur og traustlegur eins og bjarg, en
jafníramt hlýr.
Norræna biskupafunainum lauk, eins
og fyrr sagði í Skálholti 6. ágúst meo
messu og borðhaldi. Heimamönnum á
síaðnum verður sá dagur minnisstæð-
ur. Þar fór allt fram með virðuleik og
innileik. Virtist svo sem gestirnir fögn-
uðu mjög bæði stað og stund.
G. Ól. Ói. skráði.
Þó í litlu sé
Þótt fólk geíi tilvist Guðs harla lítinn gaum alla jafna, bæði í orði og á
borði, þá hafa þó flestir furðu mikla tilhneigingu til þess aö halda
sambanai við hið heilaga, þó í iitlu sé. Þeir fara máske í kirkju, ti! þess
að heyra svolítið í orgelinu eða til að virðafyrlr sér helgisiðina. Ellegar,
séu þeir í herþjónustu, að þeir gleðjast yfir því að hafa kristinn mann
eða prest með sér, þótt þeir geri lítið með boðskap hans. Það er eins
og þeir vilji snerta horn altarisins með einum fingri! Þeir viija ekki lóta
kaffærast alveg I guðlausum heimi. Þeir vilja halda óbrenglaðri útsýn
til einnar, mjög lítillar stjörnu.
En í fjöldanum, sem Jesú fylgir, leynist líka önnur manngerð. Honni
tilheyra þeir, sem leika tveim skjöldum. Á sunnudögum íara þeir til
kirkju og hlýða Guðs orði. Og hver veit nema þeir verði meira að segja
snortnir af því um stundarsakir. En óðara en þeir eru komnir aftur í
búðina, á verkstæðið eða skrifstofuna á mánudagsmorgni, þá er engu
líkara en þeir stilli á aðra bylgjulengd. Þarna líta þeir á fólkið í krlngum
sig sem keppinauta, en ekki meðbræður, sem Kristur birtist í. Þarna
keppa þeir eftir gróða og gengi, án þess að Ijá því nokkra umhugsun,
hvort Guð er með þeim í verki eður ei. Þarna, að loknum störfum,
eítast þeir svo við ódýra afþreyingu, en taka sér aldrei andartakshlé
til að hugsa um það, að endurnærður verour maðurinn því aðeins,
að hann staldri við og spyrji sjálfan sig þessarar spurningar: ,Hvar
stend ég, og hvert leiðir þetta mig, allt saman?“
Sjá bls. 12. Dæmisagan um kostnaðinn.
11