Kirkjuritið - 01.04.1977, Page 35
JÖHANNES SIGURÐSSON, prentari:
Biblían hans ]óns Brandssonar
Ég sat einn heima kvöld nokkurt og
var að þýða kafla úr danskri bók. Það
yar hlýtt og notalegt í stofunni minni.
A,lt var kyrrt og hljótt. Ég var hug-
fanginn af efninu, sem ég var að þýða,
°g notaleg vellíðan fór um mig allan,
Hkama og sál.
í Þessum kafla bókarinnar var vísað
íil margra ritningarstaða, sem ég fletti
UPP jafnóðum í Biblíunni minni, þar á
meðal Jes. 59,19, síðara hluta vers-
'ns, er hljóðar þannig í dönsku Biblí-
nnni: ,,Nár Fjenden kommer som en
F,od, skal Herrens Ánd opprette Ban-
er imod ham.“ Ég hafði auðvitað flett
UPP þessum stað í Biblíunni minni, en
Þar stendur: ,,Því að hann brýzt fram,
eins 0g í gijúfrum, er andgustur
Drottins knýr áfram.“ Þetta var tölu-
vert öðruvfsi, og féll ekki inn í efnið,
svo ég var um stund ráðalaus. Þá datt
mer i hug að fletta upp í Biblíunni
hans Jóns Brandssonar.
Biblían hans Jóns er Þykk bók í
stóru kvartbroti, prentuð með gotnesku
,etri- Á titilblaðinu stendur:
B I B L í A
Það er öll
HEILÖG RITNING
ut9efin að tilhlutan Hins íslenzka
Biblíufélags, 6. útgáfa. Selst óinn-
bundin 3 rd. 48 sk. ríkism.
Reykjavík 1859
Prentuð í Prentsm. íslands hjá
E. Þórðars.
Ég tók nú þessa bók, sem ég hafði
ekki snert um langt skeið. Þegar ég
fór að blaða í bókinni, veitti ég því
eftirtekt, að víða var brotið blað og
sums staðar krossað við einstök vers,
en strikað undir önnur. Nú gleymdi ég
stað og stund og því verki, sem ég
var að vinna, en minningarnar
streymdu fram í huga minn, fagr-
ar minningar um mann, sem hafði átt
þessa bók, Ijúfar endurminningar frá
þeim tíma, er ég kynntist honum.
Það er sólfagur sumardagur í júní-
mánuði 1929. Ég er farþegi með
strandferðaskipinu Esju. Við erum á
leið inn Siglufjörð. Ég stend á þilfari
og virði fyrir mér, með mikilli eftir-
væntingu, kaupstaðinn, sem nú rís úr
sæ, eftir því sem skipið nálgast. Þetta
er ákvörðunarstaður farar minnar. Ég
hef komið hér áður. Það var sumarið
1906, þá 14 ára unglingur, háseti á
fiskiskipi. Skipstjóri var Hjalti Jónsson
en skipið, sem var kútter, bar nafnið
,,Swift.“ Hjalti var meðeigandi í skip-
inu, en félagar hans voru þeir Jes
Zimsen kaupmaður og Þorsteinn Guð-
mundsson yfirfiskmatsmaður. Erindið
inn á fjörðinn var að ná í snjó í frysti
skipsins. Við vorum á þorskaveiðum,
en höfðum veitt í net nokkrar síldar til
33