Kirkjuritið - 01.04.1977, Side 38

Kirkjuritið - 01.04.1977, Side 38
um var það fagnaðarefni að tala um Drottin sinn og frelsara. Biblían var honum kærust allra bóka. Þangað sótti hann kraft og styrk í baráttu lífs- ins. Áður en ég kvaddi, tók ég upp Biblíuna mína og las kafla fyrir þau hjónin. Að því loknu höfðum við sam- bænastund. Þeirri stund mun ég aldrei gleyma. Þarna var maður, sem vanur var að biðja og kunni það. Hann bað fyrir mér og starfi mínu, hann bað fyrir landi og þjóð. Hann bað fyrir bæjar- félaginu. Hann bað fyrir fiskimönnun- um á hafinu, fyrir verkafólkinu á sölt- unarstöðvunum og fyrir prestunum, að þeir boðuðu orð Drottins hreint og ó- mengað, svo að þjóðin léti frelsast. Bæn hans var heit og innileg. Á þessari stundu knýttumst við órjúfandi vináttuböndum í Drottni. Þegar við stóðum upp frá bæninni, tók Jón stóru Biblíuna sína og þrýsti henni að hjarta sér og sagði með tárin í augunum: ,,Það er sorglegt, að þjóðin mín skuli að mestu hafna þessari bók, orði lífs- ins, gleypa við alls konar villukenn- ingum og sértrúarkreddum. Guð gefi henni náð til að snúa við að þessari uppsprettulind lífsins." Endurnærður og glaður í anda kvaddi ég þessi hjón og gekk að starfi mínu með nýrri djörfung. Það gefur að skilja, að þarna kom ég oft mér til mikillar uppbyggingar og uppörvunar. Hér var sönn ,,Bet- anía.“ Árin liðu og heilsa Jóns fór versn- andi. Sumarið 1933 lá hann rúmfastur allan tímann, sem ég var á Siglufirði. Ég kom þó oft til hans og las fyrir hann og bað með honum. Þá var það eitt sinn, að hann tók stóru Biblíuna sína og sagði: „Þegar ég fell frá, vil ég ekki, að þessi bók fari á flæking. Hún er kjörgripur hjarta míns. Þess vegna langar mig til að biðja þig að skrifa fyrir mig framan á hana eins og ég les fyrir. En það á að vera þannig." ,,Til vinar míns, Jóhannesar Sig- urðssonar, með kærleikskveðju frá Jóni Brandssyni." Hann ætlaði samt að hafa hana hjá sér, gat ekki án hennar verið. Jón komst á fætur eftir þetta. En síðasta sumarið, sem ég var á Siglu- firði, 1939, lá hann aftur rúmfastur. Þegar ég kvaddi hann um haustið, tók hann Biblíuna og fékk mér og sagði um leið: ,,Nú skaltu fara með þessa blessuðu bók með þér. Hún er svo stór og þung, að ég veld henni ekki lengur." Jón Brandsson og Kristfn Jóhannes- dóttir, kona hans, eru bæði löngu lát- in. Það varð skammt á milli hjónanna. Sömuleiðis eru þeir Tryggvi Kristins- son og Gunnlaugur Sigurðsson dánir. Litla kirkjan á eyrinni er horfin, en stór kirkja hefur verið reist í hllðinni fyrir ofan eyrina. Prestaskipti hafa orðið nokkrum sinnum, síðan Jón Brandsson leið, og margvíslegar breytingar átt sér stað. En eitt hefur þó ekki haggazt, heldur staðið óbifanlegt og öruggt í hverful- leika tímans. Það er Guðs orð. Biblían hans Jóns Brandssonar er mér sérstakur helgidómur. Hún vitnar um mann, sem í hafróti og stormum lífsins hafði Guðs orð ,,að leiðarsteini í stafni“ og þess vegna náði heim I þá höfn, sem hjarta hans þráði. Frásögn þessi var áður birt í Bjarma. 36

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.