Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 26
20 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. »Ef þeir venda.c svaraði jeg, »þá l.enda þeir á milli okkar og sandgrynninganna við strönd- ina, og þá erum við vissir með að vinna þá.« »Regar jeg æski ráðiegginga yðar, herra minn, skuluð þjer láta þær í tje, en fyr ekki. Pað er jeg, sém stjórna þessu skipi,« svaraði kapteinninn snúðugt. Jeg bar hendina upp að hattinum og skip- aði hásetunum upp á þiljur til að venda. Jeg var nú alveg viss um, að hann var með þessu bragði að reyna að sleþpa við orustu. »Hvað er þetta? Á að fara að venda? Hverskonar djöfulsins ráðsiag er þetta!« nöldr- uðu hásetarnir hver við annan, þegar þeir komu upp á þiljurnar. »Hægir! Rögn bæði fram á og aftur á! En jeg er hræddur um, herra kapteinn, að við fáum hana ekki yfir nema með því að skut- hverfa. Vindurinn er sama og enginn.« »Jæja, skuthverfið henni þá, herra Simple.* Ekki batnaði skap skipshafnarinnar við þetta örþrifaráð, og foringjarnir þögguðu ekkert niðri í þeim. Pað svall i þeim sama gremjan. »Strengið dragreipin og komið ránum yfir og verið hljóðir!« skipaði jeg byrstur. Og þegar búið var að hringa upp dragreipisend- ana, var gefið merki til máltíðar. Pegar klukkan var um hálftvö, rann á dá- góður byr og þokuna birti, og eftir stundar- fjórðung sáum við áftur herskipið, Lustu þá skipverjar upp fagnaðarópi. Kapteinbinn varð fokvondur og skipaði þeim að þegja. »Hverskonar agi er það, sem fyr- verandi kapleinn hefir haft á mönnum sínum, herra Simple? Þeir æpa eins og villimenn,' hvenær sem þeim gott þykir.« Mjer gramdist mjög þessi ósvífni í garð O’Brians og svaraði: »Já, herra minn. Þessi skipshöfn hefir vanist því, að láta í Ijósi gleði sína í : hvert sinn og þeir hafa átt þess kost að fást við óvini föðurlandsins.* »Rað er svo, herra Simple,« svaraði hann. • Hvert skal stýra?« spurði vökustjórinn og heilsaði. »Á að elta skipið? « »Vitanlega,« svaraði kapteinninn og gekk niður í farbúð sína. »Verið vongóðir, drengir!* sagði Swinburne gamji. »Fallbyssurnar eru allar í besta standi og jeg skal reyna að sjá um, að ekki skorti púðrið. Og jeg vænti þess, að þið látið enn sjá, að »SkelIinaðran« getur bitið frá sjer.« »Já, og það þó hún sje höfuðlaus,« skaut einn inn í. Pað var fyndnasti náunginn á skipinu. Pegar óvinaskipið sá, að ekki varð hjá or- ustu komist, hægði það á sjer og dróg upp hollenska fánann. Nú kom kapteinninn aftur upp á skutþilj- urnar, og nú var ekki nema hálf sjómíla milli skipanna. »Eigum v.ið að leggja að hliðinni, eða hvernig á að hafa það?« spurði jeg. (Niðurlag næst). -—— Sætermy r. Eftir Johan Bojer, Hann átti heima uppi á háfjöllum, en hugur Á unga aldri keypti hann húskofa, sló hann hans beindist allur að sjónum, það var það sundur og ók viðnum á sleða inn yfir heið- undarlega við hann. arnar. Uppi á öræfum reisti hann sjer lítið

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.