Tíbrá - 01.01.1892, Qupperneq 80
76
fyrir oss nýjum heimi, og mætti segja, að hún
hafi veitt oss hið sjötta skilningarvit, til þess
að sjá með hið ósýnilega.
Þá er menn lesa rit náttúrufræðinga, og veita
því eptirtekt, hversu þeir gagnskoða hina dýpstn
leyndardóma, að því er snertir likamabygging
•og líf þeirra vera, sem eru svo litlar, að aug-
að getur ekki gert sér nokkra grein fyrir til-
veru þeirra, þá freistast menn til þess að spyrja,
hvort vísindamaðurinn í einhvers konar lær-
•dómsdrambi setji ekki sinar eignar hugmyndir
í staðinn fyrir hreinan sannleika. Menn, sem
eigi hafa fylgt tímanum, hafa álitið fullyrðing-
ar smæðarfræðinganna einberar hégiljur. En
•er menn athuga hin afar-nákvæmu verkfæri
þeirra, er það fljótséð, að missýning getur eigi
auðveldlega komizt að, hversu óskiljandi sem
uppgötvanir þeirra virðast vera.
Smæðarsjónpipan var fundin því nær um
sama leyti af tveim vísindamönnum í Hollandi,
Leuwenhoeck og Ilartzoeker, og vildi hvortveggja
hafa heiðurinn af fundningunni. Hinn fyrr-
nefndi var þó að réttu lagi hinn fyrsti smæð-
arfræðingur, en hinn síðarnefndi var eigi ann-
að en góður náttúrufræðingr.
(Framhald í næsta árg.)
/S,