Gripla - 01.01.1984, Síða 20
16
GRIPLA
En ef sár felur meS öllu ásjá sína og hrœring harms míns,
þá mun sár enga hjálp finna,
og því efra mun það verra verða,
20. og þaðan af mun mér brátt bana fá,
....því að eldur er beiskari í útkomu
en inni byrgður..........
(og engi er laus, meðan bundinn er.)
Því man eg nú mæla við Venerem kvennagyðju, er bani er lífs
míns.
25. Einkavon lífs míns, dýrleg Venus, heil sé þú!
er lætur alla hluti vera undir þínu valdi.
Þig hræðist háleitt konungaveldi og þjónar þér.
Væg, þú hin milda, lítillátlega mínum bænum,
og eigi vert þú hörð við mig, og eigi skalt þú móti standa minni
nauðsyn
30. heldur ger þú það er eg beiðumst. Eigi bið eg þig stórra hluta,
kveð eg og eigi stóra vera, en þó sýnast mér stórir vera.
En þér er þó mér þetta að gefa ei alltorveldlegt.
Seg aðeins að eg játta, og þegar mun eg sæll vera,
og þá þegar munu mér koma allir hógværir hlutir.
35. Ein er sú í grennd við mig, er eg vilda eigi að mær væri,
og ef eigi stoðar mér miskunn yður, þá týni eg henni þunglega,
því að eldur þyngir meir þeim er á liggur en hinum er fjarri er.
Mig myndi og minnur saka, ef hún fjarri væri,
því að það er sagt, að hún sé ein fegri öllum návistarkonum sínum.
40. Annaðhvort er að mig blekkir ást eða er hún ein yfir öllum.
Sjá hefir gegnum lostið mín innyfli vísu gaflaki,
og þau vopn má eigi þaðan færa með mínu afli,
fyrir sakar sárs míns. Harmur vex æ jafnan í öllum tíðum,
og litur þverr, og afl minnkar og mín fegurð.
45. Og þetta sagða eg engum, og ei nefnda eg þann er mig særði,
og rétt var sök og sögn.
og það er sagt, og eg játa, að hún er kyngöfgari mér.
50. Sæmd og tilgjöf er eigi til með mér né gnótt fjár, en það biður
þó hennar.