Eimreiðin - 01.06.1922, Page 2
130 VFIR VATNAHJALLA OG SPRENGISAND eimreiðiN
og lét hann hafa þann gráa minn í staðinn. Var mér skemt,
þegar hann var að dást að fjöri þess gráa, sem eg sat á. —
En enginn má við öllu sjá, því að næst þegar við áðum kom
kynferði hestanna upp prettunum.
Að Torfufelli. Um nónbil þegar við lögðum af stað, gerði
utangolu með þoku og úrkomu og hélst úrkoman á okkur inn
Hús Sfeingr. Matthíassonar héraðslæknis á Akureyri.
í Saurbæ. Borðuðum við þar skyr og rjóma — í yfirlæti og
sóma — hjá nýju prestskonunni og skildum þar. — Reið eg
þaðan til Æsustaða og var þar vel fagnað. Fanst mér eigi of*
sögum sagt af rausn þess heimilis.
Með því að dagur var að kvöldi kominn, lögðu hjónin að
mér að vera þar um nóttina. Þorði eg það eigi vegna fylg^'
armanns míns, sem var inni í Hólagerði. Bjóst jafnvel við að
það gæti eyðilagt ferðalagið næsta dag. Níels bóndi reið með
mér að Torfufelli. Var dimt orðið af nóttu, svo að eg settist þaf
að. — Eg fekk bestu viðtökur — en hestunum slept á túnið-
Yfir Vatnahjalla. Eg vaknaði er »sól skín í sali«, klukkan