Eimreiðin - 01.06.1922, Síða 6
134
VFIR VATNAHJALLA OQ SPRENGISAND eimreiðin
Undir Laugarfel/i. Við áðum V2 tíma við laugina og drukkum
úr henni. Hún er að því leyti frábrugðin öðrum laugum, sem eg
hefi séð, að hún kemur upp í steinþró, á að giska 2 stikna langri
V2 stiku breiðri og jafndjúpri, alveg sem steypt að undirlagi
Tr. Gunnarssonar til að vatna hestum. Vantar að eins skiltið:
»Leyfið hestunum að drekka«. Vatnið ca. 30—40° heitt. —
Dálítið kippkorn sunnan við laugina eru tóftir, sem Hjálmar
nefndi »Seltóftir«. Er mælt, að Guðmundur ríki á Möðruvöll-
um hafi haft þar í seli.1)
Klukkan var ekki meira en 8, besta veður, en tekið að
kólna og þoka komin á Vatnajökul í suðrinu. Okkur þótti
því fullsnemt að setjast að, enda áformað að komast alla leið
að Sóleyjarhöfða næsta dag, helst með viðkomustað og dvöl
undir Arnarfelli hinu mikla. Hjálmar hafði í. fjallgöngum und-
anfarin ár sjeð haglendi álíka langt sunnan Laugarfells og við
vorum norðan. Taldi hann þangað klukkustundar ferð, og
reyndist það rétt vera. Fórum við þá suður milli Laugarfells
á vinstri hönd og Laugarfellshnúks á hægri, — greiðfærar
melöldur.
Náttstaður. Haglendi það, sem við fundum, var við uppsprettu-
lindir nokkrar vestan í ás, er gengur suður úr Laugarfelli. Hag-
lendið sýndist gott til að sjá, en reyndist lélegt við nánari
skoðun. Skjól var þar sæmilegt, en votlent, þar sem skjólið
var best. — Við settumst að í laut uppi undir ásunum, sett-
um hvílupokana fremst í hana, en hestana í hana ofar, þar
sem hún var stærri, dýpri og votlendari, og meira var hag-
lendi. í sjóndeildarhringnum höfðum við háar melöldur í suðri
(Háöldur) og Laugavatnshnúk í norðvestri, en framundan flat'
neskja með smálækjarsprænum, sem hurfu við sandhóla nokkra,
er bar í norðausturhornið á Hofsjökli. Og í vestri og suðvestri
lokaði Hofsjökull sjóndeildarhringnum. Hann stóð þar hár og
hrikalegur í rúmri mílufjarlægð með mjallhvíta, slétta fannbreið-
una yfir kolsvörtum, úfnum klettasnösunum.
1) Daniel Bruun telur, aö þar muni hafa varið „haft í seli í svarta
dauða", og er sennilega átt við að þangað hafi verið flúið undan pest
inni._(Geogr. Tidskrift 1901—02, síða 228).