Eimreiðin - 01.06.1922, Side 25
eimreiðin
HÁKARLAVEIÐIN
153
— Komdu hérna Gísli, og haltu honum. Þú ert líklega fær
um það. Ekki þarf að leita á greyinu, svo er hann nú fá-
Wæddur.
Gísli kom og tók hendur Englendingsins aftur fyrir bakið.
Hélt hann þeim eins og í járnklípu.
Þórður gekk út á stjórnpallinn og kallaði til manna sinna:
— Farið nú nokkrir og kastið vörpunni með hlerunum og
öllu fyrir borð! En gætið þess samt vandlega, að hásetarnir
l<omist ekki upp!
Síðan fór hann aftur inn í klefann og staðnæmdist frammi
fyrir Englendingnum.
— Kaptein? sagði hann spyrjandi.
Englendingurinn kinkaði kolli.
-— Allright, þá byrjum við! og Þórður kinkaði kolli til Gísla.
Síðan tók hann upp peningabuddu sína. Hann opnaði hana
°9 tók úr henni 5 krónu seðil. Því næst sýndi hann skipstjór-
anum seðilinn.
— Kaptein, einn, tveir, þrír, fjórir .... sagði Þórður,
Hldi á fingrum sínum og benti á seðilinn.
Skipstjórinn hristi höfuðið og tautaði eitthvað þrjóskulega.
En Þórður lét sér ekki segjast. Hann hvesti augun á Eng-
lendinginn, tók í öxl honum og hristi hann. Skipstjórinn rak
UPP öskur — og Gísli hefir sagt svo frá, að hræddur sé hann
Uiu það, að Þórður muni eigi hafa látið sér nægja að klípa
' skyrtuna eina.
Þvínæst greip Þórður annari hendi í hálsmál skipstjóranum,
eu hinni milli fóta honum og hljóp af stað með hann út á
sljórnpallinn. Englendingurinn rak upp öskur, er hann sá
9'vtta í lygnan sjóinn. Gerði hann nú Þórði skiljanlegt, að
hann vildi borga. Linaði þá Þórður takið og dró skipstjórann
lnu með sér. Fóru þeir síðan ofan í skipið, en Gísli beið
uPpi á meðan.
Innan skamms komu þeir upp aftur, og hélt skipstjórinn á
yeski í annari hendinni. Hann gekk hægt og virtist nú fylli-
Ie9a rólegur. Upp úr veskinu dró hann þykkan böggul af
Seðlum, er hann fékk Þórði. Tók hann við þeim og taldi þá.
Síðan kinkaði hann kolli og glotti.