Eimreiðin - 01.06.1922, Side 27
EIMREIÐIN
Bókasafn hins hégómagjarna.
Eftir Tómas De Yriarte.
(Spánskt)
Hann átti miklu meira fé en vit,
— því mörgu flóni brosir auðsins dís. —
Hann reisti hús með hvers kyns skraut og glit,
sem heimskan kýs:
»Já, gull er húsið! greifasetri jafnt«,
kvað granni hans: »og víða ber þitt nafn;
en breyting ein, sem bætti’ og prýddi samt
er bókasafn.
Því þótt þú lesir hvorki bók né blað
og bókalestur skapi’ ei hagfræðing,
þá eitt er víst: það upphefð veitir samt
sem auglýsing«.
»Já, þetta ráð er gagnlegt, gott og rétt
(hví gat mér ekki sjálfum hugkvæmst það?)
Og bókastofan björt og stór skal sett
á besta stað.
Þar læt eg smíða hyllur, skápa’ og hólf;
með heimsins bestu ritum skal það fylt.
Já, langs og þvers frá lofti nið’r í gólf,
alt logagylt.
Og eg á þjón, sem þykir bestum jafn
að þekkja bækur — aldrei svíkur mann. —
I kaupstaðinn að sækja valið safn
eg sendi hann«.