Eimreiðin - 01.06.1922, Side 33
eimreiðin
ÞJÓÐS0GUR
161
Við ærsli þessi varð öllum mönnum hughvarf og sintu eigi
bandingjanum. En þá brá líka svo við að Gissur sá þar hjá
sér standa gráan hest, og hugði hann sér sendan. Treystir
hann á böndin, og sleit sig iausan, og hljóp á bak Grána og
var þegar horfinn öllum. Enda var þá líka gambanteinsmaður
horfinn og sá enginn hvað af varð. En Gráni fór sem elding
yfir fjöll og dali, því hann var gandur, uns Gissur kom til
hunnáttumanns, sem líka var góður maður. Hann varði Gissur-
til næsta Alþingis, og varð Kölski af kaupinu og Gissur laus.
ungans, sem fáir munu þekkja nú orðið og mun því hafa snúist í vindu-
1ein, sem alls eigi á við. Vísan er þannig prentuð áður:
„Vinduteininn firðar fundu.>
Fer sú grein af vinduteini:
Vinduteinn lét aldrei undan;
einatt hvein í vinduteini".
Sumir hafa byrjunina svona:
„Vinduteinn er boginn í bandi.
Bogið er tré í Vinduteini" o. s. frv.
Fleiri útgáfur eru til af vísunni, eða hafa verið. Háttur þessi heitir
Hrynhenda, sem kunnugt er.
11