Eimreiðin - 01.06.1922, Page 43
eimreiðin
VIÐ LANGELDA
171
sem hann er að lýsa. Þetta kvæði og önnur svipuð eiga ekk-
ert skylt við það, þegar skáldin segja sem fæst, en alt þó svo,
að lesandinn getur sjálfur ort í eyðurnar. Hér er með poetiskum
frösum verið að telja manni trú um innihald, sem ekki er til.
Vfirleitt eru margar af konumyndum S. Gr. svo sviplausar,
svo ósérkennilegar og almennar — lýsingarnar gerðar eftir
tví sem beinast lá við vegna rímsins, að undrun sætir, að
skáldið skuli hafa gert sig ánægðan með þær.
Þú áttir guödóm, ást og vín,
eld og hjartaslátt
Se9ir hann um Erlu sína, en Eygló lýsir hann á þessa leið:
Hún Eygló er fædd til að fagna og þrá,
og falla að ólgandi hjarta,
að leika, líða og kvarta.
Fædd til að lifa, leita og spá
um logandi hjarta, er hann að slá.
Fædd til að shína og skarta. ■—
s. Gr. yrkir um margar konur, en af því að honum í hjarta
sinu er sama um þær flestar, tekst honum ekki að gefa þeim
SVlP, skapferli, líf — að eins meira eða minna skáldlegt nafn.
Þess vegna man maður fátt úr konukvæðum hans nema nöfnin
~~ og svo þessar yndislegu línur um Urrni, þar sem hann
lýsir henni með
sumar og angan
um sólheitan vangann.
7~ betta er að sjá með sál sinni, með augum fagurrar ástar
kvenlegrar æsku og þetta er að kunna að syngja. Því
kfátt fyrir alt er Sigurður Grímsson skáld. Innan um öll hin
^ófgu kvæði í bók hans, sem mér ekki getur geðjast að, eru
svo hin á dreifingi, sem taka af öll tvímæli um sérkennilega
HÓðgáfu.
tnnan um öll þessi blælausu raunastef eru önnur kvæði,
Par sem tilfinningin er látlaus og fáorð, en bitur og sár.
Va*ta höllin er best af þessum kvæðum — að eins þrjár
stuttar vísur og svo blátt áfram að orðavali og hreim, eins og
fær væru mæltar af munni fram — en hér er lýst í einfaldri