Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1923, Side 67

Eimreiðin - 01.04.1923, Side 67
ÉIMREIÐIN Ummæli Kins góökunna mentafrömuÖs Magnúsar kennaraskólastjóra Helgasonar um Trúarsögu Sig. P. Siverlsen: Margvíslegir lærdómar um trúarefni þjóta nú um eyru almennings, og vekja umhugsun og umtal. Hjá því getur ekki farið, að efasemdir vakni um ymislegt, sem kent hefur verið og oft meðtekið með lítilli hugsun og grunnum skilningi. fslendingar eru yfir höfuð að tala svo gerðir, að þeir vilja vita og skilja, svo í trúarefnum sem öðrum. Nýja testamentið, undir- staða allra kristinna fræða, er nú að vísu til á hverju heimili að kalla má, en vafalaust minna lesið en skyldi og það er nokkur vorkunn. Al- menningi er kunnugt, að allar kirkjudeildir sanna lærdóma sína með orðum þess, þó að gagnstæðir sjeu, og nú er því iðulega að mönnum haldið, að vfsindamenn, sjálfir guðfræðingarnir, keppist um að vefenga það og lítilsvirða. Auk þess getur ekki hjá þv! farið, að Ýmislegt tor- skilið mæti fljótt huganum ! bók, sem til er orðin fyrir svo mörgum öldum og hjá svo fjarskyldri þjóð sem Gyðingar eru oss íslendingum, og rituð. af mörgum höfundum og mjög ólikum Til þess að skilja það, þarf því þekkingu á siðum, hugsunarhætti, aldarfari, menningarstigi og öllum ástæðum manna og tíma, er það stafar frá. Alla 6iðustu öld hefur fjöldí vísindamanna variö æfi sinni og allri elju til að rannsaka þetta efni, og beitt til þess öllum þeim ráðura, er vísindamenn eiga nú kost á. Hefur ekkerl svipað kapp verið lagt á rannsókn nokkurrar annarar bókar enda hiklaust játað að nýja testamentið hafi meiri þýðingu haft fyrir alla menningarsögu kristinna þjóða heldur en nokkur önnur bók — jafnve! allar aðrar bækur til samans. Ekki er nú litilsvirðingin á því meiri en svo. — Með aðbeina rannsókna þessara er bók sú samin, er hjer kemur nú á boðstóla. Höfundur hennar er gagnkunnugur þeim, en aðalheimild hans er vitanlega nýja testamentið sjálft. Bókin virðist rituð af hleypi- dómalausri sannleiksást, og jafnframt einlægri lotningu fyrir efninu, og bæði ljóst og skipulega varpar hún nýrri birtu yfir hina fyrstu kristni. og nýja testamentið. Vel veit jeg, að sú birla út af fyrir sig nægir ekki til þess að lestur nýja testamentisins svali hjartans dýpstu og bndans æðstu þrá með þeim sannindum, sem smælingjar tíðum finna en vitringum dylj- ast. Þar þarf annað og meira til. En hún ætti þó að geta stuðlað að því. Því ljósari sem skilningurinn verður á höfundum nýja testamentisins, því gagnteknari verður hugurinn af honum, sem er einka meistari og drottinn þeirra allra saman. En auk þess hlýtur hver kristinn maður, og mér liggur við að segja — hver sem vill teljast mentaður maður, að finna þörf og löngun til að fá sem réttasta hugmynd um aðra eins bók og nýja teslamentið. Þar — og hvergi annarsstaðar — er að leita fræðslu heyrnarvotta og sjónarvotta um líf Jesú og lærdóm — og hvað því er kristindómur í raun og veru, það verður að skera úr um einstaka lærdóma, hvort þeir eru frá Jesú eða börum, og það verður að vera leiðarvísirinn, þegar velja skal milli Krisls e®a einhvers annars leiðtoga og athvarfs ! lífi og dauða. Um þetta efni hefur tilfinnanlega vantað fræðibækur á fslensku. Bók Þfissi kemur því ! góðar þarfir, og er óskandi, að sem flestir ætlu þess kost að lesa hana og gerðu það með athygli og alúð. Þykist jeg vita að ekki einungis prestum og kennurum veröi forvitni á að kynnast efni hennar, heldur og fjölda annara manna, sem hug hafa á trúmálum.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.