Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1927, Page 26

Eimreiðin - 01.07.1927, Page 26
218 TRÚIN Á JESÚM KRIST, GUÐSSON eimreiðin aði sonur, í dag hef ég getið þig«. Vér könnumst við orða- lagið frá Sálm. 2, og meiningin hlýtur að vera: Á þeirri stundu, er ]esús lét skírast f Jórdan og andinn kom yfir hann, var hann »getinn guðs-sonur«. Þá greindi Quð Jesúm frá öllum mönnum, útvaldi hann og gat hann sér að »syni« í alveg sérstökum skilningi, þ. e. þá fól hann honum þau rétt- indi og lagði honum þær skyldur á herðar, sem geymdar voru Messíasi, konungi framtíðarríkisins. Þessi skilningur, að Jesús hafi orðið guðs-sonur við skírnina, kom glögglega fram í þeim sið í fornkirkjunni að halda svonefnda »epífaníu«-hátíð 6. jan- úar til minningar um skírn Jesú, löngu áður en tekið var að halda nokkura jólahátíð til minningar um fæðing hans. Epí- faníu-hátíðin var talin eins konar fæðingarhátíð hans, því að við skírnina hafði guðssonurinn fyrsta sinn komið í ljós. Alt fram á 4. öld var þessi hátíð haldin. En jólahátíðin varð ekki almenn innan kristninnar fyr en á 5. öld. Þegar vér athugum frásöguna um skírn Jesú í guðspjöll- um þeirra Markúsar og Matteusar, sjáum vér, að orðin, sem röddin af himni heyrðist segja, eru nokkuð öðru vísi: »Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun« (ávarp hjá Markúsi, yfirlýsing hjá Matteusi: Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef o. s. frv.). Þar er líkingunni um getnaðinn slept, enda hlaut hún að vera óskiljanleg lesendum, sem áður höfðu heiðnir verið og alókunnugir gyðinglegum hugmyndum. í þeirri mynd virðast orðin löguð eftir Jes. 42, 1: »Sjá þjón minn ... minn útvalda, sem sál mín hefur þóknun á«. Merkingin í gríska sagnorðinu (evdóxi]aa) er eiginlega: ég hef fengið þóknun á, hef valið eða kjörið. Meiningin verður þá mjög lík og í Lúkas-textanum: Þú ert minn elskaði sonur; þig hef ég útvalið! Svo að höf. Markúsarguðspjalls hefur vafalaust líka litið svo á, að skírn Jesú hafi verið það augnablik, er Jesús var kallaður til Messíasar-starfsins og um leið kjörinn guðs- sonur. En engin ytri tign fylgdi kölluninni. Fyrir því komu svo fáir auga á, hver hann var í raun og sannleika — eftir því sem þessi guðspjallamaður leit á. Menn þektu hann eigi. af því að hann »kom fram að ytra hætti sem maður«. Freist- arinn (Matt. 4, 3. 6) og illu andarnir, sem töluðu af vörum hinna brjáluðu, vissu það, að því er guðspjallið skýrir oss frá,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.