Eimreiðin - 01.07.1927, Side 33
Eimreiðin TRÚIN Á JESÚM KRIST, GUÐSSON 225
•
verið jarðneskur faðir hans, eins og María var móðir hans.
En af því að hann var síðar talinn vera Messías, þá var hann
k'ka guðs-sonur. En þegar kristniboðið barst út í gríska heim-
inn, varð þörfin æ meiri á að gera sér ljósari grein fyrir upp-
runa hans. Og nú skýra þeir, er þessum hugsunarferli fylgja,
framþróun hugmyndarinnar á þessa leið: Grikkir fengu eigi
skilið hina andlegu merkingu í guðssonar-heitinu; þessi orð í
2. sáiminum: >Þú ert sonur minn; í dag hef ég getið þig«
voru þeim sem ráðgáta. En þegar þeir heyrðu talað um Jesúm
sem guðsson, þá settu þeir það í samband við sínar eigin
hugmyndir um sonu guðanna. Fyrir grísk áhrif hefur síðan
kugmyndin um getnaðinn af heilögum anda orðið til, segja
ýmsir lærðir biblíufræðingar og sagnfræðingar. Þeir játa að sú
hugmynd komi fram í undursamlega hreinsaðri mynd í for-
sögum þeirra Matteusar og Lúkasar (einkum þó Lúkasar).
Þar er því einu haldið fram, að fóstrið hafi orðið til í móður-
kviði fyrir skapandi mátt Guðs heilaga anda; en því samt
bætt við í Lúkasarguðspjalli, að fyrir því »muni og það, sem
fæðist, verða kallað heilagt, sonur Guðs«.0
Og nú sýnir kirkjusagan oss, að þessi skilningurinn á guðs-
sonarheitinu varð ofan á í kirkjunni og komst inn í trúar-
játninguna, sem vér lærðum í æsku og ranglega er kend við
Postulana; því að hún er miklu seinna til orðin. — Þessi
kenning um yfirnáttúrlegan getnað var ein tilraunin til að
skýra hina undursamlegu persónu Jesú. Hún var að dómi
sumra upphaflega andstæð fortilverukenningunni. En síðar
I) Þaö er alkunnugt, að sams konar hugmyndir um „guðs-sonu“ eða
Vfirnáttúrlegan getnað voru til bæði meðal Babýloníumanna og Egipta, já
meðal Indverja og Kínverja og fleiri þjóða. Sumir fræðimenn telja því
hklegt, að hugmyndin hafi komist inn í kristnina annaðhvort frá Babý-
loníumönnum eða Egiptum, því að með þeim þjóðum voru t. d. vold-
u9ustu konungarnir taldir bæði guðs-synir og endurlausnarar og frelsarar
^annkynsins, af því að þeir voru brautryðjendur nýs tíma. En þegar
r'stnin hóf göngu sína, voru slíkar hugmyndir einnig alþektar meðal
Qfikkja og Rómverja (keisararnir taldir vera guðs-synir). Og meðal
Srisku-mælandi þjóða breiddist kristnin fyrst út og varð fyrir mestum
úhrifum þaðan (Sjá t. d. Nikolai Blædel: Födt af Jomfru Maria. Reli-
9'°nshistoriske Smaaskrifter II, Gyldendalske Boghandel 1910).
15