Eimreiðin - 01.01.1930, Síða 24
4
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
eimreiðin
og þrautseigju kynslóðanna en saga landsins, sagan um þaðr
hvernig hver kynslóðin af annari hefur haldið uppi landnáms-
starfinu, jafnan rétt við aftur og hafist handa á ný, þótt sóknin
reyndist erfið. Landið er frjálst og fullvalda vegna þess, að
landnámsstarfið hefur aldrei fallið niður með öllu, ekki einu-
sinni á mestu niðurlægingartímunum, sem sagan hefur frá að
skýra. Og þó hefur landnámið aðeins verið á byrjunarstigi
alt fram á síðustu ár.
En þúsund ára afmæli alþingis markar tímamót í landnáms-
sögu þjóðarinnar. Aldrei hefur önnur eins breytinganna öld
gengið yfir Iandið og nú. Mörgum óar byltingabylgjan, finst
sem margt hljóti að skolast með af því, sem þjóðin átti bezt
og traustast í fari sínu. En er þetta ekki ástæðulaust? Get-
um vér bent á nokkuð úr lífi þjóðarinnar, þó ekki sé farið
skemra en hundrað ár aftur í tímann, sem nú er horfið svo
að veruleg eftirsjá sé að? Tala ísiendinga hefur þvínser
þrefaldast síðan um 1800. Það hefur verið áætlað, að 1
fornöld hafi verið hér á Iandi 60—80.000 manns. Árið
1801 voru landsbúar aðeins 47.000 talsins-
Árið 1850 voru þeir orðnir 59.000. Um
aldamótin 1900 voru þeir 76 000. Nú erU
þeir um 105,000. Auk þessa munu 25—30,000 íslendingaf
eiga heima í Kanada og Bandaríkjunum, og allmargir dvelja
á öðrum stöðum erlendis. Um 1800 var Reykjavík smáþorp
með um 300 íbúum. Nú eru íbúar hennar um 25.000 og auk
þess um 30 kaupstaðir víðsvegar um Iandið, með frá 300—
3.500 íbúum hver. Flutningur fólks af landi burt er því naer
alveg horfinn úr sögunni. Meðalaldur manna hefur lengsL
barnadauði minkað og hreinlætið aukist.
Eg býst við, að sumir mundu vilja benda á landbúnaðinn
sem eitt dæmi hnignunar í lífi þjóðarinnar. Landbúnaðurinn
hefur verið aðalatvinnuvegur landsmanna síðan landið bygðisL
og ætti svo að vera áfram. En þróun annara atvinnuvega,
einkum fiskiveiðanna, hefur gengið svo ört, að landbúnaðurinn
hefur hvergi nærri haldið í við þá. Árið 1850 lifðu
búnaður. °/o af landsbúum á landbúnaði, en árið 1890
aðeins 64°/o, og nú Iifa ekki nema 40°/o af þjóð-
inni á þessari atvinnugrein. En nú standa yfir tímamót í land-
Tala landsbúa
fyr og nú.