Eimreiðin - 01.01.1930, Page 79
Eimreiðin GUÐFRÆÐINÁM OG GÓÐ KIRKJA 59
mlög eftir hæfileikum þeirra. Og þeim mun sjálfum í lófa
la9ið að ráða mestu um námstilhögun. Að vísu er til reglu-
9erð, sem kveður á um þær greinir, sem kendar eru og eitthvað
tessháttar, en alt virðist benda á, að kennurunum sé í sjálfsvald
SeIt, hverjar breytingar eru þar á gerðar. Tillögur þeirra munu
taldar þyngstar á metunum, og þau nýmæli, sem þeir kynnu
að vilja koma á, eru því líklegust til að ná framgangi. Auk
þess er svo með guðfræðideild sem aðra skóla, að mikið
r‘ður á hvernig er kent, stundum fult eins mikið og hitt,
hvað kent er. Og mikið af náminu og áhrifum þess stendur
°9 fellur með persónuleika kennarans. Sitji þröngsýnn og
°lriór andi í því sæti, eru litlar vonir um mikinn árangur,
hvernig sem reglugerðin kann að vera. En ef djörfum og
yíðsýnum mönnum er á skipað, — mönnum, sem eru lífrænir
1 hugsun og kunna að vekja skapandi áhuga nemenda sinna
°9 byggja traustan grundvöll undir holla lífsstefnu þeirra, —
ma altaf gera sér miklar vonir um þá stofnun, sem þeir
starfa við.
, Eg hef áður lýst núverandi námstilhögun guðfræðideildar-
mnar, og sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um hana.
Ykir mér ólíklegt, að þeir, er voru í deildinni samtímis mér,
efðu leyft mér að vera einum til frásagnar um þau efni, ef
mj°9 hefði farið fjarri sanni. Má því ætla, ef eitthvað hefur
tindað mig gagnvart því máli, að sama »þokan« byrgi þeim
sVn og sú, er vefur mínar hugsanir, að dómi R. E. Kv. Er
a9 vondaufur með, að þeirri þoku muni fremur létta, þótt við
éidum áfram að skemta fólki með að teygja orð og setn-
m9ar hvors annars á milli okkar. Vænti ég að við öðru sé
Ulst af okkum en slíkum drengjaleik, enda hefði þá vinna
°Miar jjj j.jjjg gagns yerjg, Hinsvegar gæti það leitt til ein-
Vers gagns að ræða í fullri alvöru, hvort tímabært sé að
reYta námsháttum guðfræðideildarinnar, og hverjar breytingar
^®tu komið til greina.
Þótt ég hafi gert athugasemdir við ófyrirleitna lýsingu R.
• Kv. á þessari stofnun og leitt að því nokkur rök, að sú
me9instefna, sem nú ríkir í námstilhögun hennar, sé heilla-
v®nleg og í fullu samræmi við tilgang sinn, hefur mér aldre i