Eimreiðin - 01.01.1930, Page 84
64
GUÐFRÆÐINÁM OG GÓÐ KIRKJA
EIMREIÐlN
— Hjálpumst fyrst að því að gera félagsfræði samtíðar vorr-
ar hreinni og sannari, og innlimum hana þá í kristna guð'
fræði — ekki fyr.
Ragnar E. Kvaran kvartar ennfremur yfir því, að guðfrasð-
ingar hafi »ekki nokkurt yfirlit yfir þá höfuðstrauma hugs-
analífsins, sem renna inn í, undir og yfir hvern annan í hug-
myndaheimi þeirra manna, sem eru að setja mark sitt a
menningu vora«. Um þessa umkvörtun er í rauninni fátt eitt
að segja. Sérhver maður, sem hefur það Iítillæti til að bera
að hann fái sig til að leggja nokkurn mælikvarða á þekk'
ingu sína, getur kvartað yfir þessu sama. Djúpum lærdónu,
hvassri skarpskygni og ágætri dómgreind getur sífelt fatast •
þessu efni. Það mætir oss sífelt aragrúi af óráðnum gátum i
lífi samtímismannanna. Sjálfur er R. E. Kv. um þessar mundir
að gefa þjóðinni sýnishorn af hæfileikum sínum í áðurgreinda
átt. Ef einhverjum kynni að finnast fátt um, er víst til ætlash
að guðfræðideildinni sé um kent, — ekki honum sjálfum.
Ritsfjóri þessa tímarits gat þess í forspjalli fyrsta heftis
1929, að »endurbætur á námstilhögun guðfræðideildarinnar®
hafi verið eitt af áhugamálum próf. Haralds Níelssonar síð'
ustu árin, sem hann lifði. Væri mikilsvert, að einhver, sem
gagnkunnugur hefur verið tillögum hans um þetta, gerði Sre,n
fyrir þeim.1) Veit ég, að á þeim myndi meira að græða
hugvekju Ragnars E. Kvaran um nám guðfræðinga.
Mér er það minnisstætt, að prófessorinn lét orð um þa^
falla, hve miklum tíma þyrfti að eyða í nám, sem ekki hefði
jákvætt gildi. En það tók hann fram, að á því námi væn
engu síður nauðsyn eins og sakir stæðu, — það þyrfti a^
hjálpa guðfræðingunum til að ’eyða margskonar úreltum
1) Eg geri ekki ráð fyrir, að til séu nokkrar ákveÖnar tillögur H-
um þessi efni, enda þótt hann hugsaði mikið um þau. Síöasta samta
mitt við H. N. var um „endurbætur á námstilhöguninni". Það var fáum
dögum áður en hann lézt, og var hann þá að fást við þýðingu a fyrir,
lestri Fagginger Auers um hlutverk kirkjunnar, en sá fyrirlestur birtist^ i
Eimr. 1928, bls. 135—146. Er í fyrirlestrinum einmitt vikið að námi gu
fræðinga og endurbótum á því. Ritstj.
ð-