Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1931, Page 86

Eimreiðin - 01.07.1931, Page 86
286 TOLSTOJ 00 KREUTZER-SÓNATAN eimreiðin sfytt. Sfead hafði UveðiÖ fast að orði um það, hvílík óhæfa væri að banna nýjustu bók jafngöfugs siðgæðispostula og snillings eins og Tolsto) væri. „I Tolstoj er sameinuð snild Shakespeares og siðgöfgi hinna he- bresku sjáara“ — hafði franska skáldið Flaubert sagt um Tolstoj, og nu hugðist Stead að færa heiminum sönnun fyrir réttmæti þeirra ummselat með því að birta söguna. En Stead mætti ófyrirsjáanlegum örðugleikum. Newnes, sem þá átti tímaritið „Review of Reviews" að mestu, hélt þvl fram, að ástæður rússnesku ritskoðaranna fyrir banninu væru réttmætar og tók þvert fyrir, að sagan yrði birt í tímaritinu, jafnvel þótt felt yrð> úr henni og hún stytt. Stead brá sér til eins vinar síns og fékk Iánað hjá honum nægilega mikið fé til þess að geta keypt „Review of Review6 af Newnes. Þannig komst sagan til enskumælandi lesenda og þannig at- vikaðist það, að Stead varð einn eigandi að tímariti því, sem hann hafði stofnað og sfðan stjórnað með svo mikilli prýði. Stead ritaði fróðlegan formála fyrir sögunni og skýrir þar meðal annars frá því, að Tolstoj hafi verið búinn að lúka henni árið 1888, en ekki verið ánægður með hana. Tolstoj samdi hana því upp að nýju oS lét hreinskrifa hana oftar en einu sinni. Hann var fram úr hófi vand- látur við sjálfan sig. Sumar sögur sínar lét hann hreinskrifa upp hvað eftir annað og breytti þeim meira og minna í hvert skifti. Þannig hrein- ritaði kona hans bókina „Líf“ sextán sinnum upp aftur frá upphafi til enda, áður en Tolstoj væri ánægður með bókina og léti prenta. Enda þótt Sfead yrði til að birta „Kreutzer-sónötuna" fyrstur á ensku, var hann þó ekki allskostar ánægður með efni hennar. Það er nógu gaman að kynnast því, hvernig þessi mikilhæfi maður leit á þær kenn- ingar, sem Tolstoj er að boða í sögunni. Stead segir í formálanum- Þegar ég fékk þýðinguna að Kreutzer-sónötunni frá St. Pétursborg °S hafði lesið handritið, skildi ég hversvegna sagan hafði verið bannfærð, og ég skildi þá líka það, sem ég hafði ekki komið auga á áður, þótt Tolstoj greifi sé að vissu leyti allra hreinlífismanna mestur, er hann ekki vestrænn í anda, heldur er heimspeki hans, hugsjónir og Þr^r austræns eðlis. Hugsanaþráðurinn í Kreufzer-sónötunni er fremur af Buddhatrúarlegum en kristnum toga spunninn. Tolstoj þráir ekki eins mikið komu guðs ríkis hér á jörðu eins og hann þráir algleymi (Nir- vana) í öðrum heimi. Hann gleðst af því, að þegar mannkynið læri að sigrast á ástríðum sínum, þá muni það deyja út.----------------Ég var ei** sinn á ferð minni í Rússlandi að skýra manni einum, sem þekti Tolstoi vel, frá skoðunum greifans á ástinni. Maðurinn sagði blátt áfrarn ekki annað en þefta: „En greifinn hefur aldrei verið ástfanginn. Hann velt ekki hvað ást er“. Mér fanst þá, að þetta væru þung orð, en effir hafa lesið Iýsingu Tolstojs í „Kreutzer-sónötunni" á hjónabandinu, Þa held ég helzt, að maðurinn hafi haft rétt fyrir sér............Sagan er hræðilega skýr lýsing á þeim örlögum, sem þeir menn skapa sér, er hafa hjónabandið að skálkaskjólí til þess eins að láta eftir girndum sin' um. Síðari hluti sögunnar er lýsing á sálarlífi slíkra, rituð af ágætas|a
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.