Eimreiðin - 01.07.1931, Page 94
294
KREUTZER-SÓNATAN
eimreiðin
Þessi óvenjulega röksemdaleiðsla féll búðarpillinum einkum
vel í geð, og hann rak ósjálfrátt upp langt aðdáunaróp.
»Þetta er alveg rangt*, svaraði frúin áköf. »Það er þó ekki
hægt að þvinga hjón til að elska hvort annað, ef þau bera
ekki neina ást í brjósti hvort til annars«.
»En þegar eiginkonan verður manni sínum ótrú, hvað þá?«
spurði málfærslumaðurinn.
»Það á ekki að koma fyrir«, svaraði gamli maðurinn, »svo
langt má það aldrei ganga«.
»En komi það nú fyrir, hvað þá? Því dæmin eru til«.
»Ef til vill annarsstaðar, en ekki hér hjá okkur«, sagð'
kaupmaður.
Nú varð augnabliksþögn, svo að búðarpilturinn, sem sízt
vildi standa öðrum að baki, notaði þegar tækifærið til þess
að færa sig nær og leggja orð í belg.
»Jú, víst eru dæmin til, eins og hneykslið hjá okkur í búð-
inni. Það er ekki svo auðvelt að boína í því öllu. En einn
af piltunum okkar hafði krækt sér í eina af þessum herjans
drósum, sem eru dálítið lausar á kostunum, eins og komist
er að orði. Það gekk svo sem ekki lítið á hjá henni. Piltur-
inn er prúðmenni og enginn auli. Fyrst fór hún að daðra við
bókhaldarann. Pilturinn okkar ætlaði þá að leiða henni fyrir
sjónir með góðu, að þetta daður ætti ekki við, en hún var
hin versta. Það var enginn sá óknyítur til, að hún ekki hefði
í frammi, til að skaprauna honum. Svo fór hún að hnupla af
aurum hans. Hann lamdi hana, en ekkert dugði, hún bara
versnaði. Loks fór hún að eiga mök — svo ég viðhafi vaeg
orð — við gyðingshund einn. Hvað átti nú piltur okkar að
gera? Hann lét hana fara og lifir nú eins og ógiftur maður,
en hún er á flækingi*.
»Þetta hefst upp úr því að haga sér eins og sauður«, sagði
gamli maðurinn. »Ef hann hefði aldrei leyft henni að leika
lausum hala, en tekið hana strax alvarlega til bæna, hefði hun
haldið sér í skefjum. Það er um að gera að grípa nógu snemma
í taumana. Giftri konu er jafnt treystandi og tryppi í haga«-
í sama bili kom lestarþjónninn til þess að taka við far'
seðlum þeirra, sem ætluðu úr lestinni á næstu brautarstöð.
Kaupmaðurinn afhenti sinn og sagði um leið: