Eimreiðin - 01.07.1931, Qupperneq 110
310
RITSJÁ
EIMREIÐIN
sem skyldi. Sum atriÖi eru nefnd á fleiri en einum stað, og kemur Þa
fyrir, að rétt er á öðrum slaðnum, en rangt á hinum.
vEins og ég gat um f upphafi þessa máls, tel ég hina síðari kafla rits*
ins taka tveimur fyrstu köflunum langt fram. Sumir þeirra að minsta
kosti eru líka að miklu leyti beinlínis teknir upp úr bókum þeim, sew
getið er um í ritinu neðanmáls. Það hefði verið æskilegt, að höfundur-
inn hefði getað fylgt þeirri reglu einnig í hinum köflunum, og mundi
þá betur hafa farið.
Hér er ekki tækifæri til þess að rekja efnið neitt að ráði, en ég Set
þó ekki stilt mig um að drepa lauslega á eitt atriði, sem mér þyli,r
einna athyglisverðast. Það er skoðun sú, sem nú virðist munu ryðja ser
til rúms, um uppruna hinnar feykilegu orku, sem sól vor og biljómr
annara sólna í geimnum senda frá sér í líki ljós- og hitageisla og ann'
ara enn þá orkuþrungnari geisla. Það hefur löngum verið ráðgáta,
hvaðan öll sú orka stafaði, sem sólirnar hafa sent frá sér um biljon>r
ára og eiga, að því er virðist, eftir að senda frá sér um biljónir ara
enn þá.
Það hefur til skamms tíma verið grundvallarsetning í efnafræðinni, a^
efnismagnið í heiminuin væri óbreytilegt þrátt fyrir allar hinar margv>s'
legu efnaummyndanir, sem þektar eru. Á hinu leitinu hefur verið til'
svarandi setning um orkumagnið. En nú virðist hvorug setningin
út af fyrir sig, heldur verður að slá þeim saman í eitt allsherjarlögmál>
sem hljóðar þannig, að efnis- og orkumagnið samanlagt sé óbreytileS*>
og að eitt gramm af efni, hvert svo sem það er, jafngildi 9 X
orkueiningum (erg). Það er nú talinn einasti möguleikinn til þess a^
skýra orkuúfgeislun sólnanna, að efnið getí breyzt í orku(geislun).
má því segja, að efnið sé ekki annað en samanþjöppuð orka, og l11111
er þar fyrirliggjandi í svo ríkum mæli, að sólirnar, sem að vísu erU
geysilega efnismiklar, geta lifað góðu lífi um biljónir ára. Hitt er vitan-
Iega afleiðing af þessari skoðun, að sól vor hlýtur að lokum að kólna
svo, að hún megnar ekki að skapa skilyrði fyrir neinu lífi á jörðunnn
Svo efnismikil er þó sólin, að hún hefði ráð á því að eyða í útgeislun
250 miljónum tonna efnis á hverri mínútu í nærri 15 biljónir ára. E°
sennilega verður hún orðin jarðarbúum gagnslítil Iöngu fyrir þann tíma-
Mörgum dettur sjálfsagt í hug í sambandi við þetta, hvort hið gaSn'
stæða muni ekki geta átt sér stað, að orkan breytist í efni. Þess erU
ekki dæmi, svo menn viti, en auðvitað er það engin sönnun þess, að
slíkt hafi ekki eða geti ekki átt sér stað. Hver veit nema ný „sköpun
fari fram, þegar sá tími kemur, að meiri hlutinn af efnismagni sólnanna
hefur ummyndast í geislun, sem leikur lausbeizluð í geimnum, og hver ved
nema þetta gerist einhverstaðar nú, þó að vísindin kunni þar ekki skil a-
Ég læt þetta nægja sem sýnishorn af hinu margvíslega og fróðlega
efni ritsins. Að vísu mun það vera eitt af því, sem mesfur byltinS3'
bragur er á, en Iíkt má segja, að skoðanir manna hafi breyzt á ýinsun'
sviðum nátlúruvísindanna hin síðari árin.