Eimreiðin - 01.07.1940, Blaðsíða 46
246
EFNI OG ORKA
eimreiðin
hlaðin var neikvæðu (negatífu) rafmagni og reynst hefur vera
að þyngd Viaw af léttustu frumeindinni, (sem er vetnisfrum-
eindin). Rafeindirnar fundust fyrst sjálfstæðar í bakskauts-
gjeislunum (katóðugeislum), en síðan rejmdist auðvelt að finna
þær svo að segja alstaðar, t. d. streyma þær út frá glóandi
málmþræði, en á því grundvallast meðal annars rafmagns-
tækni sú, sem gerir mögulegt útvarp, fjarsýni o. m. fl.
Af uppgötvunum þeim, sem gerðar voru um seinustu alda-
mót, má þó telja langmerkasta uppgötvun hinna geislamögn-
uðu efna, sem íslenzkir lesendur eiga nú auðvelt með áð kynn-
ast í bókinni „frú Curie“, sem gefin var út um seinustu ára-
mót. Við rannsókn á hinum geislamögnuðu efnum komust
menn enn á ný í kynni við rafeindirnar, því að þær mynda
óefageislana, sem streyma út frá sumurn geislamögnuðuni
efnum. En auk þess komu fram á sjónarsviðið nýjar rafmagn-
aðar agnir, af/a-agnirnar, sem reyndust vera heh'umfrumeindir,
er mist höfðu tvær rafeindir, en það er, eins og síðar kom a
daginn, kjarni þessarar frumeindar. Auk þessara efnisagna
streyma frá geislamögnuðum efnum ^ammageislar, sem eru
sama eðlis og ljósgeislar, en miklu orkumeiri. Þannig fékst
sönnun fyrir því, að frumeindir hinna geislamögnuðu efna
voru samsettar úr smáögnum, hlöðnum jákvæðu og neikvæðu
rafmagni, en um innbyrðis afstöðu þeirra var alt í óvissu.
Einnig varð þá að líta svo á, að svipað gilti um frumeindir
annara frumefna.
Það var Englendingurinn Rutherford, sem varð fyrstur til
þess að greiða verulega úr hinni flóknu gátu um gerð frum-
eindarinnar. Hann uppgötvaði frumeindarkjarnann árið 1911’
í frumeindarkjarnanum reyndist langmestur hluti af efni frum-
eindarinnar saman kominn. Þaðan stafa alfa- og betaagnirnai
ásamt gammageislunum. En utan við kjarnann reyndust vera a
sveimi fleiri eða færri rafeindir, og fann danski eðlisfræðing-
urinn Bohr reglur um það, hvernig þær raða sér i hvelmynd-
aða hópa mismunandi langt frá kjarnanum.
Aftur var það Rutherford, sem gerði fyrstur tilraunir, ei
gáfu upplýsingar um gerð frumeindarkjarnans. Hann notaði
eins og við hinar fyrri tilraunir, þegar hann uppgötvaði frum-
eindarkjarnann, alfaagnir, sem þeytast út frá geislamögnuð-