Eimreiðin - 01.07.1940, Blaðsíða 60
260
WINSTON CHURCHILL
eimheiðin
lendumálaráðherra og síðan flugmálaráðherra, þá hermálaráð-
herra og loks fjármálaráðherra. Eftir það verður hann flota-
málaráðherra í annað sinn og er nú bæði landvarnarmálaráð-
herra og forsætisráðherra. Það er öðru nær en hann hafi altaf
verið flokksmönnum sinum þægur ljár í þúfu. Þvert á móti
hefur hann aldrei látið floklcshagsmuni sitja i fyrirrúmi, held-
ur farið eftir eigin sannfæringu, þó að hún kæmi ekki altaf
heim við sannfæringu samflokksmanna. Hann hefur þá einnig
verið ýmist í flokki íhaldsmanna eða frjálslyndra, eftir því við
hvora honum féll betur í það og það skiftið, en þó miklu leng-
ur i frjálslynda flokknum. Og jafnan hefur hann verið ein-
dreginn fylgismaður frjálsrar verzlunar. Hann hefur aldrei
getað felt sig við troðnar slóðir hinna dyggu flokkaklíkufylgj'
enda innan þings og stjórnar. Til þess er hann of frjáls i
hugsun og gjarn á uppreisn. Hefur þetta leitt til þess, að hann
hefur oftar en einu sinni lent í andstöðu við fylgismenn sína
og jafnvel staðið einn uppi.
Winston stundaði nám í mentaskólanum Harrow og í Sand-
hurst, en til háskólanáms kom ekki, því að loknu námi í Sand-
hurst gekk hann í herinn. Honum leiddist latína og gríslca, en
hafði allan hugann við hernaðarvísindi, enda var hann ekki
nema rúmlega tvítugur þegar hann hætti námi til þess að
komast í herinn. Fyrsta orustan, sem hann tók þátt í, var háð
á eyjunni Cuba, en þangað komst hann sem stríðsfréttaritari.
og gat með því móti staðist þann kostnað, sem af svo langn
ferð leiddi. Þetta sama notaði hann sér, er hann réðist frétta-
ritari til Indlands, fyrir blöðin Pioneer og Dailij Telegraph, UPP
á 5 sterlingspunda laun fyrir blaðadálkinn. Síðar fór hann til
Afríku og var þá fréttaritari stórblaðsins Morning Post °»
fékk 15 sterlingspund fyrir dálkinn, svo að ritlaun hans höfðn
þrefaldast á skömmum tima, enda vöktu greinar hans mikla
athygli. Kitchener lávarður var þá hershöfðingi Breta í Afríku
og naut mikils álits og þó enn meira síðar, bæði í Búastríðmu
og loks í heimsstyrjöldinni 1914—1918. En Churchill gagn
rýndi í greinum sínum Kitchener allfreklega, einkum fyrir með
ferð hans á föngum, enda varð af nokkur kali milli þeirra u*-
af þessu. Segir William Stead í „Skapgerðarlýsingu“ sinni
Churchill, sem hann reit í Review of Reviews 1904, að hei
af