Eimreiðin - 01.07.1940, Blaðsíða 90
290
ÓSÝNILEG ÁHRIFAÖFL
EIMREIÐIN
vildi Sir Edward sjá aðferð
þína, svo að þú dáleiddir að-
stoðarmann þinn, og féll hann
brátt í mjög djúpan svefn.
Þetta gerðist í herbergi lög-
regluforingjans í Scotland
Yard-byggingunni, og eftir að
aðstoðarmaðurinn var kominn
í djúpan dásvefn, fór hann
brátt að lesa hugsanir Sir
Edwards af hinni mestu ná-
kvæmni. Þegar hinn dáleiddi
var spurður um hvað Sir Ed-
ward væri að hugsa nú, svar-
aði hann samstundis: „Sir Ed-
ward heldur, að þú sért brjál-
aður.“ Og þetta var alveg satt.
Sir Edward hélt í raun og veru
að þú værir ekki með öllum
mjalla! Síðan hélztu áfram að
lofa Sir Edward að leggja
mjög ítarlegar prófraunir fyr-
ir hinn dáleidda aðstoðarmann
þinn, sem leysti þær svo vel af
hendi, að þú sannfærðir Sir
Edward um, að dáleiðsla sé
vísindi, sem hægt sé að nota
til blessunar og gagns fyrir
þjóðfélagið við rannsókn
glæpamála. En sjálfur var
hann valdalaus í þessu máli og
þorði ekki að taka upp aðferð
þina, því lögin bönnuðu hon-
um það.“
„Þetta er hverju orði sann-
ara,“ svaraði meistarinn, „og
hversu margt mætti ekki gera
fleira til gagns og blessunar,
með aðstoð þessara afla, ef
þeim væri beitt réttilega. Það
er rétt að muna, að ekki er
nauðsynlegt að dáleiða glæpa-
manninn eða þann, sem grun-
aður er um glæp, heldur má
nota þriðja mann, sem þarf að
vera góður miðill. Má þá vel
dáleiða miðilinn án vitundar
hinna ákærðu og þeirra, sem
eiga að rannsaka þá. Hvorugur
þessara aðila þarf að vita um
miðilinn. Skýrslu hans má svo
nota, að lokinni yfirheyrslu,
til nánari rannsóknar, ef ekki
er hægt að nota hana sam-
stundis í réttarsalnum meðan
yfirheyrslur standa yfir, svo
sem ekki má samkvæmt nú-
gildandi lögum. Hinn skygni
miðill getur gert meira en les-
ið hugsanir þeirra, sem við-
staddir eru yfirheyrsluna.
Hann getur séð sjálfan glæp-
inn eins og hann var framinn,
út frá þeirri mynd, sem mót-
ast hefur af honum í huga hins
seka. En miðillinn getur meira.
Hann getur skýrt í smáatrið-
um alt í sambandi við atburð-
inn, og má nota þessar upplýs'
ingar samhliða hinni löglegu
rannsókn málsins og leggju
þær svo fram með öðrunr
gögnum í lok rannsóknar. Það
liggur og í augum uppi, að 1
mörgum öðrum málum en
lögreglumálum og skyldum