Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1940, Side 66

Eimreiðin - 01.07.1940, Side 66
266 WINSTON CHURCHILL EIMREIÐIN milli hans og Fishers lávarðar, sem í nóvember 1914 tók við yfirflotaforingjastarfinu. Enginn einn maður annar en Churc- hill hafði gert eins mikið eins og Fisher til að koma flotanum í sem fullkomnast horf. Hann var nú orðinn 74 ára, en hinn ernasti og engu síður stórlyndur og ráðríkur en Churchill sjálfur. I janúar 1915 barst beiðni til Breta frá Nikulási stór- hertoga i Rússlandi um hernaðarlega aðstoð gegn Tyrkjum á Ballcanskaga. Churchill lagði til að hrezki flotinn yrði látinn ráðast á tyrknesku vígin við Dardanellasund. Fisher vildi ekki hætta flotanum í sundin, en lagði til að ráðist yrði á Þýzkaland að norðan, með landher inn í Slésvig-Holstein og með sjóher á strandlengjuna við Eystrasalt. Áætlun Fishers var feld. Á fundi, sem haldinn var í herstjórninni í London um málið, lcomst alt í uppnám. Fisher hótaði að segja af sér. Aðmírállinn yfir flota- deildinni, sem átti að ráðast inn í sundið, réði frá því að halda áfram tilrauninni, vegna tundurduflahættu og varnarvirkjanna á ströndinni. Churchill samdi símskeyti til hans um að halda áfram. En skeytið var aldrei sent. Herstjórnin í London vildi ekki taka á sig ábyrgðina. Þá gerðist það, að Kitchener sendi landher til Gallipoli, og ætlaði með því að vinna upp aftur það, sem flotinn hafði tapað með hinni mishepnuðu tilraun sinni til að komast um sundið. Churchill taldi þetta hið mesta óráð, vegna ófullnægjandi undirhúnings og bygði alt sitt traust á flotanum. Landherinn, sem sendur var, reyndist altof fálið- aður, enda lyktaði þessari för illa. í þessu öngþveiti, sem orðið var innan herstjórnarinnar í London, hætti það ekld úr skák, að Fisher sagði af sér og stakk af til Skotlands. Asquith skip- aði honum í nafni lconungs að hverfa aftur í stöðu sína, en Fisher sat við sinn keip. Herförin til Callipoli leiddi til breyt- inga í stjórninni. Churchill varð að leggja niður flotamálaráð- herraembættið. Andstæðingar hans kendu honum um ófarirn- ar á Balkanskaga, fall Antwerpenborgar og herskipatjónið n höfum úti. Samsteypustjórn tók við völdum, og var Asquith í fyrstu forsætisráðherra áfram, en síðar kom Lloyd Georges í hans stað. Sjálfur Kitchener kom til að þakka Churchill vel unnið starf. Það var fjarri því að þeir væru altaf sammála, en þegar Kitchener kom að votta Churcliill samúð sína út af út- reiðinni sagði hann: „Jæja, eitt hafa þeir ekki getað tekið frá
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.