Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1940, Page 72

Eimreiðin - 01.07.1940, Page 72
272 A BIÐILSBUXUM EIMREIÐIN stundin svo hræðilega mishepnað, að alt fór út um þúfur, áður en nokkuð var einu sinni byrjað. Það var líka þetta, meðan karlinn lifði. Brandur var aldrei ákveðinn gagnvart karlinum, honum pahba hennar, en nú var hann dauður, og þá var það að Brandur hafði keypt biðils- buxurnar. Og hann hafði fengið eitthvert andlegt hugboð um, að þær myndu hrífa. Annars var hann nú nógu myndarlegur, hár og þrekinn, með digra, loðna handleggi og herðar eins og hangiketskrof. Og Áslaugu var hann búinn að ákveða sér fyrir eiginkonu. Þau voru á líkum aldri, um fertugt, með svipaðar efnahags- ástæður og álíka ásthylli, enda hafði Brandur oft beðið guð þess, nú í sex ár, að láta engan hiðja hennar Áslaugar á Ivömb- um fyr en þá að hann væri búinn að fá hana fyrir konu. Og sú bæn virtist hafa verið heyrð venju fremur. Áslaug var jafn- ómenguð af óorði vegna karlmanna eins og nýfætt ungharn. Brandur ræskti sig, leit í spegilinn í siðasta sinn, lagaði gler- augun og sneri yfirskeggið. Svo kastaði hann ltveðju á kerl- inguna, móður sína, og gekk virðulegur og hnakkakertur út og yfir að Kömbum. Veður var gott, færðin ágæt og Brandur í góðu skapi, en ekki laust við dálítið kitlandi ónotahroll í bakinu á honuin, ekki óáþekt glímuskjálfta. Hvað er líka erfiðara að glíma við en ógiftan kvenmann? Eins og oft vill verða, þegar mikið stendur til, bar hugur- inn manninn hálfa leið, og fyr en varði stóð hann á hlaðinu á Kömbum. Hann dunsaði svolítið úti fyrir, til að safna kröftum undir atlöguna, og barði svo hægt og virðulega að dyrum. En það var ekki Áslaug, sem kom til dyra, heldur ung stúlka, með stuttklipt hár og málaðar augnabrúnir, og þessa stúlku hafði hann aldrei áður séð. Hún var lág og feitlagin, kringluleit í andliti með stór augu og lostalegan munn, blóðrauðar, alveg ótrúlega blóðrauðar varir, en jafnfagrar og æsandi fyrir því. Holdugir armarnir voru berir upp til axla og hálsinn og barmurinn logandi hjartur, ber niður undir geirvörtur, blúsan svo þunn, að brjóstin virtust nær því nakin, hvelfd og mikik
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.