Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1941, Page 44

Eimreiðin - 01.10.1941, Page 44
380 FREMSTA LEIKKONA ÍSLANDS EIMREIÐIN um að tjaldabaki. Hún leit upp. Það glóðu tár í augum hennar. Engin leikhústár — þau eru ekki til. Raunveruleg tár. Þetta var ekki Gunnþórunn Halldórsdóttir. Þetta var kerlingarnornin, sem var að verða of sein til að koma góðu til leiðar. — Ég gekk hljóðlátlega í burt, sneyptur maður gagnvart svo stórkostlegn hluttekningu — í leik. Rauði þráðurinn í list Gunnþórunnar er hluttekningin, sam- úðin með því, sem lifir og hrærist. Henni var ekki vel við að leika Nillu í „Jeppa á Fjalli“ af því að Nilla er samúðarlaus eins og hrísvöndurinn, sem hún leggur á bak bónda sínum. En það var eitt atriði í hlutverkinu, sem sætti hana við það. Það er hið grátbroslega samtal Nillu og Jeppa, er hún hyggur hann dauðan og afturgenginn í gálganum, þar sem hún biður hann fyrirgefningar á hnjánum, þar sem í ljós kemur, að Nilla og Jeppi hafa einhverntíma verið ung, átt sér vonir og unnað. — Mild samúð lífsreyndrar konu skein út úr hlutverkum eins og Geirlaugu í „Hallsteinn og Dóra“ og Þóru prestsmóður í ,Á heimleið“. Gríma í sjónleiknum „Jósafat“ var frábært leik- afrek, ekki einasta fyrir þá samúð með smælingjanum, senr skein þar fram úr hverjum drætli, heldur eiunig fyrir þá ein- stöku athyglisgáfu, sem meðferð hlutverksins sýndi. Þessi at- hyglisgáfa hefur iðulega komið Gunnþórunni að góðu liði, ekki sízt þegar hún hefur leitt íslenzkar konur fram á leiksviðinu- Hún lýsir sér jafnt í kímni sem alvöru. Tökum konu Jóns bónda í Fjalla-Eyvindi. Hún segir svo sem ekkert, er bara nieð hinu fólkinu. Hlær með því og er hreykin af hinum góðglaða bónda sínum. Þar er ekkert viðbragð, ekkert handtak, sem íslenzk bóndakona gæti ekki látið sjá til sín, ekkert sem minnir á bæjarbúa og kaupsýslukonu. í þessu örlitla hlutverki og í mörgum öðrum miklu stærri er það hin smitandi kátina hinnar öklruðu leikkonu, sem heldur áhorfendum svo við efnið, að þeir gleyma líðandi stund — og hlæja með. Unga stúlkan, sem skáldið vildí ekki láta nokkurn rnann beygja, varð ekki beygð. Hún stendur teinrétt á leiksviðinu þann dag í dag. Sjötugasta afmælisdag sinn á hún þar, rétt eins og binn tuttugasta og þriðja, en nú er hún fremsta leikkona þessa lands.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.