Eimreiðin - 01.10.1945, Blaðsíða 46
270
DRENGUR GÓÐUR
EIMRBIÐIN
úr því verður. Svo mikið legg ég ekki í sölurnar, -— og lái mér
liver sem vill. —
Hefurðu sagt Þórdísi frá þessu? spurði fóstra mín. —
Ekki orð. —
Það er ágætt. Þá ætti málinu að vera borgið, ef allt fer eins
og ég vona. — Hákon minn! Þá er röðin komin að þér, að bjarga
stúlkunni frá begningu og svívirðingu og ófædda barninu frá
smán. Svo er það Þóra sjálf, — en ég efast ekki um, að liún
fari að mínum ráðum, enda hefur liún ekki um margt að velja,
og beimurinn mun ekki dæma bana mjög liart fyrir að liafa
fallið fyrir slíkum manni sem Hákon á Flugbömrum er. -—
Hún bló aftur, lágt og góðlátlega.
Er þér alvara, Yalgerður? sagði fóstri minn, — málrómurinn
var torkennilegur — eins og liann ætti erfitt með að tala. —
Já, liér er ekkert spaug á ferðum. — Nú var málrómur fóstru
minnar ákveðinn og harður. — Og án þess að liika við sneri bún
máli sínu til Böðvars. — Ég veit, að ég þarf ekki að taka það
fram við þig, Böðvar í Urðardal, að í mínum augum verður þú
hinn versti ódrengur, ef þú nokkurn tíma segir nokkrum manni
eitt orð af því, sem okkur liefur nú farið á milli. Já, ég veit,
að þú ert drengskaparmaður og líka liitt, að lieimilisástæður þín-
ar eru þannig, að þér er ómögulegt að taka þetta á þig. — Þú
sérð nú um það, að stúlkan komi hingað út eftir sem allra fyrst,
svo að við gelum talað við hana. Hún hefur komið liingað áður,
svo enginn tekur til þess. — Og nú fer ég fram að taka til mat-
inn; ykkur veitir ekki af að fá bita, eftir allt þetta, til að bressa
upp á líkama og sál. —
Þegar bún var farin fram, þögðu þeir lengi. — Fóstri minn
gekk stöðugt um gólf. —
Valgerður á fáa sína líka, sagði Böðvar loks, — að viti og
mannkostum. Ég held, að bún komist næst því allra, sem ég hef
þekkt, að verðskulda nafnið drengur góSur. —
Þetta verður erfitt fyrir mig, sagði fóstri minn, — fullerfitt,
lield ég. —
Það skil ég vel, sagði Böðvar, — en mundu það, að sjálfsagt er
það engu síður erfitt fyrir Valgerði. Ilún er stórlát kona, og
það er ekki lítiö, sem bún gefur af sinni eigin virðingu og heiðri
í augum fólksins með þessu. Ég geri ráð fyrir því, að jafn stórlát