Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1945, Side 60

Eimreiðin - 01.10.1945, Side 60
284 FÁGÆT FRÆNDRÆKNI EIMREIÐIN „Við skulum gleyma því,“ 6agði Tliorburn. „Það er þá gjöf,“ sagði ég. „Ég þakka þér.“ „Minnztu ekki á það, drengur minn,“ sagði hann. „En viltu nú gjöra svo vel að koma liingað, þegar klukkan er eitt eftir hádegið á morgun. Ég ætla þá að biðja þig að gera nokkuð fyrir mig, ef þú verður ekki vant við kominn. Ég skal borga þér þá fyrirhöfn.“ Ég sagðist ekki verða vant við látinn, því að ég liefði ekkert að starfa nema að selja kvöldblaðið, og lofaði ég því statt og stöðugt að koma á lians fund daginn eftir. Og næsta dag, þegar klukkan var eitt eftir hádegið, var ég kominn í búðina, og var Thorburn þar fyrir. „Mig langar til að biðja þig,“ sagði liann, „að skreppa snöggvast með þennan böggul til manns, sem lieitir Higgins og á heima á Vatnsgölu hinni efri. Þú sérð það utan á bögglinum, í hvaða húsi hann býr. Komdu svo Iiingað aftur áður en þú ferð heim til þín.“ Og liann rétti mér dálítinn böggul. Ég þaut nú af stað með böggulinn og fann hús Higgins á Vatns- götu liinni efri, og ég afhenti Higgins sjálfum böggulinn. Bað ég hann að gefa mér það skriflegt á miða, að hann hefði veitt bögl- inum viðtöku, og það gerði Iiann mótmælalaust. Þá er ég kom aftur í búð Thorburns, rétti ég honum móttöku- vottorðið. „Þú varst vissulega ekki lengi að fara þetta,“ sagði Thorburn glaðlega; „og þú hefur beðið herra Higgins um móttökuvottorð. Það er næsta fágætt, að sendisveinar hugsi út í slíkt. Þeir eru, þar að auki, oftast nær heldur seinir í förum. En liér er dáiítill silfurpeningur, sem þú átt að eiga fyrir þetta ómak þitt.“ Og hann rétti mér 25 centa pening. Ég þakkaði lionum með liandabandi fyrir peninginn, og var glaður af því, að hafa inn unnið mér svona mikið á örfáum mínútum. „Komdu hingað aftur í sama mund á morgun,“ sagði Thorburn- „Ég ætla þá að biðja þig fyrir annan böggul, sem á að fara til konu, sem á heima í útjaðri borgarinnar. Þangað er nokkuð löng leið.“

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.