Eimreiðin - 01.10.1945, Qupperneq 32
256
UM KIRKJUR
BIMREIÐIN
vcgleg og varanleg kirkjuhús, og verður ríkislieihlin því að taka
upp á sig að annast uin kostnað við þetta að mikhi leyti, enda
skylt, þar eð liér er uni þjóðkirkju, þ. e. a. s. ríkiskirkju, að
ræða, og kirkjurnar áður rúðar eignum af „ríkisvaldi“ þeirra tíma.
— Sambærilegar í þessu kostnaðar-atriði eru margar aðrar al-
mennar mennta- og menningarstofnanir, er ríkið hefur, af sjálfs-
dáðum eða lil þess knúið af nauðsyn, lekið á sína arma og sér
þeim farhorða. Er það nokkuð rakið í greinargerð frumvarpsins.
Eins og kunnugt er, verður þjóðfélagsheildin eða ríkið að standa
straum af ýmsum framkvæmdum til verklegra og menningarlegra
þarfa, sem einstaklingar eða smærri samtök fá eigi orkað, en
hafa liins vegar svo veigamikla almenna þýðingu, að nauðsyn-
legt og sjálfsagt er talið að koma þeim á fót eða lialda þeim uppi.
Er það, eins og gefur að skilja, nær ótrúlegur grúi málefna, er
hér getur komið til greina, og hefur sumt af því viðgengizt um
langa hríð, en annað er nýlegra, og fer viðurkenning á þessu
vaxandi. Hér skal til samanburðar efni því, er ræðir í frv., aðeins
lítillega minnzt á hinar „menningarlegu“ framkvæmdir, eða sem
heyra mest til andlegu liliðinni í víðari inerkingu. Hin „verk-
legu“ mál eru hér eigi greind. — 011 menntunarmál livíla nú að
meira eða minna leyti, eða reyndar mest, á ríkinu, eru sem sé
annaðlivort algert á þess vegum eða lifa á fjárstuðningi þess.
1. Háskólinn í öllum greinum, er að öllu á ríkinu eða styðst við
fjáröflun með þess ráði, svo og öll vísinda- og rannsóknarstarf-
semi, sem telst eiga að koma í almannaþarfir. 2. Menntaskólarnir
að fullu og öllu. 3. Kennaraskólinn. 4. Bamdaskólarnir. 5. Hús-
mœSrakennaraskólinn. 6. Gagnfrœðaskólar kaupstaðanna eru
styrktir með % stofnkostnaðar; hinn hlutann greiða bæjarfélögin,
sem og eru opinberir aðilar og hafa greiðar tekjuöfhmarleiðir lög-
um samkvæmt. 7. Barnaskóla annast ríki og sveitarfélög. 8. Hér-
aSsskóla kostar ríkið að stofni með % hlutum, svo og lögmælta
húsmœSraskóla, — og er þetta einmitt þaS hlutfall, sem sann-
gjarnt þvkir, að ríkið beri af stofnkostnaði kirkjuhúsa eftir
ákvæðum frv. {% hl.).
Ymis konar fleiri styrki og tillög til skóla og mennta mætti
enn tilgreina til samanburðar, en verður ekki gert hér. Þá eru og
veittir stórkostlegir ríkisstyrkir til sjúkrahúsa og líknarmála, og
eykst það stöðugt. Loks má geta þess, að ríkið styrkir listir og