Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1945, Side 77

Eimreiðin - 01.10.1945, Side 77
EIMREIÐIN ELLIHEIMILIÐ 301 um, og menn fengju að' vita um ])að, mundu blöðin varla minnast á það, nema flokksblöðin, og þá með fáeinum orðum, og bann Stepliensen segja frá því í útvarpinu á 10 til 15 sekúndum, án þess að leggja meiri álierzlu á það en þó að liann væri að segja frá því, að einliver kerling, sem enginn þekkir nema familían, befði orðið áttræð þá um daginn, læsi gleraugnalaust og fvlgdist vel með öllu, sem gerðist. SNORRASEN: Það er líklega mikið til í þessu, sem þú segir, Anna mín. Það eru líka orðnir eintómir bolsar þarna við Út- varpið. TÓMAS: Já, þetta er alveg liárrétt, sem Anna segir. Hvað haldið þið kannske að blöðin eða títvarpið liafi gert úr því, þegar bann Ámundasen í Þorskafirði gaf þeim lieilt sjúkra- skýli liérna fyrir tveim árum? Það var meira að segja með herkj- um, að hreppsnefndin fékkst til þess að þiggja skýlið. Það varð börð rimrna um það í nefndinni, því menn bentu á það, sem rétt var, að skýlið mundi verða þungur baggi á hreppnum og útsvörin stórhækka á efnaðri mönnum af þeirri ástæðu. F.g gæti bezt trúað því, að hreppsnefndin liér gæti átt þad til að taka sömu afstöðu, og að sumu leyti væri það skiljanlegt, enda þótt ég sjái ekki eftir því, þó að útsvarið mitt eða okkar bérna á Eyrinni liækkaði eitthvað þess vegna. SNORRASEN: Já, ég skal kannast við, að það er töluvert til í þessu, sem þið segið, og einkum þú, Tómas, þó að ég viti reynd- nr vel, að þii ert mest að bugsa uin að missa ekki þessar firnm bundruð þúsund krónur-----. TÓMAS: Ekki liafði inér nú doltið neitt í bug um það, Snorra- sen minn! SNORRASEN: Jæja, jæja, látum það gott lieita, Tómas. En ég lái þér það ekki. Nei, ég lái þér það ekki, Tómas. Pcningar eru peningar, og ég veit, að þig langar að eiga bráðurn tvær niilljónir, sem von er. Líka skal ég játa, að mér þætti eins °g viðfeldnara og dálítið skennntilegra að vita, að eitthvað væri nnnnst á þetta opinberlega og mín minnzt að einhverju góðu. En þetta skiptir ekki svo iniklu máli úr þessu. Mann varðar skolli lítið um slíkt, þegar maður er dáinn — —, en úr því þu nefndir þetta, Anna, að gefa til einlivers annars, þá liefur niér sannast að segja líka dottið nokkuð slíkt í liug. Hvað segið

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.