Eimreiðin - 01.10.1945, Blaðsíða 33
EIMREIÐIN
UM KIRKJUR
257
leikstarfsemi og byggir nú frá grunni „þjóðleikliús“. Og þó
O'nrgviðrast menn og velta vöngum t. d. yfir því, hvernig eigi að
koma upp liöfuðkirkju landsins.
Um kirkjubyggingarmálið verður að setja gagnger lagaboð,
svo sem liér er nú stofnað til. Mun mikils við þurfa, ef fram á að
ganga málið, og verða menn að vera við því búnir, að ýmsir
ahrifamenn reyni að „losna við“ það með einhverjum liætti. Að
síðustu ætti þetta að vera undir sjálfu landsfólkinu komið, því
að hér heitir að vera lýðræðisríki.
Ef málið, sem vænta mætti, verður tekið upp aftur í þingi, er
auðvelt að bæta það í orðalagi, sem eigi þætti fullskýrt nú, og til
þess ber að gera athugasemdir, ef þurfa þykir, að lagfæring megi af
þeim leiða án þess að brjála efni málsins og sjálfsagðan tilgang.
En hann er sá, að ríkið kosti að mestu leyti kirkjubyggingar
þjóðkirkjunnar (að % hlutum); liitt annist söfnuðirnir um.
Eignir kirknanna fylgja þeim að sjálfsögðu og ganga til þeirra
barfa (m. a. í byggingarkostnað). Söfnuðir leggja og til land undir
kirkjuliúsin, ef með þarf. Áætlun skal gerð fyrir 5 ára tímabil í
senn um aðkallandi bygging kirkjuhúsa í landinu, og skulu þau
feist í ákveðinni röð, en fyrir þessu standa biskup og húsameistari
ríkisins, og verður það í samvinnu við ldutaðeigandi safnaðar-
stjórnir. Þegar ákvörðun er um slíkt tekip, skal til þess veita
í fjárlögum. Vel vönduð að öllu leyti skulu guðshúsin vera, og
u,lt það annað, er til notkunar þeirra þarf, á ríkið að leggja til
að sínum ákveðna liluta. — Kirkjurnar skulu vera á valdi safn-
aðanna eftir sem áður, og viðliald þeirra livílir líka á söfnuðun-
Um, en til þess ganga kirkjugjöld svo og til kostnaðar við sjálfar
tíðagerðirnar. Að öðru leyti annast söfnuðurinn eða safnaðarmenn
u sniar spýtur alla sérstaka prýði við kirkjur sínar, sem bæði er
leskilegt að gert sé meira að en almennt liefur verið, og einnig
U1ga menn að vera þess betiir umkomnir, er af þeim er létt miklum
kostnaðarbyrðum vegna liúsbyggingar o. s. frv.
Sérstök ákvæði og eðlileg hefur frv. að geyma um það, ef frí-
Eirkjusöfnuður myndast á löglegan liátt, þar sem þjóðkirkju-
söfnuður hefur áður verið.
Ul þess að nauðsynlegar kirkjubyggingar falli ekki niður,
Uleðan stendur á þesum lagatilbúnaði, er sett í bráðabirgðaákvæði,
U® Þær geti komið undir lögin á sínum tíma.
17