Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1945, Side 76

Eimreiðin - 01.10.1945, Side 76
300 ELLIHEIMILIÐ EIMREIÐIN meira fyrir það hérna í plássinu en liefur verið gert til þessa. Það fer ekki vel um það allt hér. Nei, ekki vel um það allt. TÓMAS (í ræðutón): Já, ég skal fyllilega kannast við það, Snorrasen, að þú hefur mjög mikið til þíns máls, og að það er mikil þörf á að gera meira fyrir gamla fólkið, bæði hér og annars staðar, en gert hefur verið. En um leið vona ég, að þú misvirðir það ekki við mig, Snorrasen, enda þótt ég láti þá skoðun mína í Ijós, að ég er af „principi“ — og engu öðru — frekar á móti slíkum ráðstöfunum, eins og þessum, sem þú liefur í liuga. Það er álit mitt, rökstutt og vel yfirvegað álit, að einstaklingarnir eigi ekki að grípa fram fyrir hendurnar á ríkisvaldinu eða öðrum stjórnarvöldum í slíku, eða yfirleitt að leggja á sínar lierðar byrð- ar, sem að mínum dómi — og ég held að ég megi fullyrða einnig þínum, Snorrasen — réttilega eiga að livíla á því opinbera. SNORRASEN: Víst er það, Tómas, að það opinbera á helzt að gera svona hluti. TÓMAS: Já, og ég lít svo á, að ef einstakir menn, einstakir hugsjónasamir og framtakssamir áliugamenn, vilja koma slíkum eða svipuðum þjóðþrifafyrirtækjum í framkvæmd, þá eigi þeir að rita um þau í blöðin eða fela þetta þingmönnum sínum til þess, að þeir komi þessu til leiðar með áhrifum sínuin í héraði eða á alþingi. Ég segi fyrir mitt leyti, að mér væri ánægja, inikil og sönn ánægja, að beita öllum áhrifum niínuni, bæði hér og á alþingi, til þess að hrinda því góða máli áleiðis, sem þú berð fyrir brjósti, Snorrasen. Og ég mundi ekki draga dul á, hvaðan hugmyndin væri sprottin, heldur þvert á móti leggja áherzlu á, að það væri tengdafaðir minn sálugi — þú fyrirgefur, Snorrasen -— sem fyrstur hefði vakið máls á þessu við mig og bent mér á nauðsyn þess. Og að það hefði í raun og veru verið síðasta ósk hans í þessu lífi að verða gamla fólkinu til blessunar með þessu móti. SNORRASEN: O, jæja, Tómas, o, jæja. — Þú kannt að tala — —þú kannt að tala------talar vel------. ANNA: Ég er viss um, að Tómasi mnndi lukkast þetta. Hann hefur svo mikil álirif í flokknum. Og svo gætir þú, pabbi, reynt að liugsa þér eitthvað annað að gefa peninga til. Það mundi líka vekja mikla eftirtekt og vera skemmtilegt fyrir okkur, ef það kæmi fram í þinginu. Þó að þú gæfir þetta, sem þú ert að hugsa

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.