Eimreiðin - 01.07.1947, Side 8
VIII
El.MRKIi'TN
Hátíðairrit á aldarafntæii Prcofiaskálans.
1. bindi: Séra Benjamín Kristjánsson: Saga Presta-
skólans og Guðfræðideildar Háskóla íslands.
Þetta er mjög ítarleg lýsing á aðdraganda og stofnun Presta-
skólans — sem þá þótti stórt fyrirtæki — starfi hans í meir en
60 ár og starfi guðfræðideildarinnar eftir að Háskóli íslands tók
til starfa. Myndir fylgja af kennurum, sem starfað hafa að
guðfræðikennslunni þetta tímabil, svo og gömlu prestaskólahús-
unum í Hafnarstræti og Austurstræti.
2. bindi: Björn Magnússon dósent: Kandidatatal
1847—1947. Viðbætir: Kandidatar frá Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Hér er um að ræða geysifróðlegt og merkilegt rit, sem kostað
hefur höfund þess óhemju vinnu og fyrirhöfn, og ómissandi verð-
ur hverjum þeim fræðimanni, sem fæst við ættfræði og per-
sónusögu. — Myndir fylgja æfiágripi allflestra guðfræðinganna,
alls yfir 400 myndir. ^
Það fer ekki hjá því, að íslenzkir guðfræðingar
1847—1947 verði talið eitthvert merkasta rit sinnar
tegundar, er út hefur verið gefið hér á landi, enda
ekkert verið til sparað af höf. og útgef. hálfu til
þess að svo mætti verða.
Ritið er 727 bls. í Skírnisbroti með hátt á 5. hundrað myndum,
en kostar þó ekki nema 100 kr. — Fæst hjá bóksölum og útgef-
enda, sem sendir það gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Sími 7554. — Pósíhólf 732.