Eimreiðin - 01.07.1947, Síða 22
174
ÆVINTÝRIÐ UM INDLAND
EIMItlClEJN
slitin losna, bönd, sem ofbeldi og kúgun aldrei fá tengd. Engu
blóði var úlliellt í viðskiptum þessara tveggja stórvelda, meðan
lokaskilin gerðust. Blóðsúthellingarnar í Indlandi undanfarna
mánuði liafa orðið í innbyrðis óeirðum milli landsmanna sjálfra.
Bæði liin nýstofnuðu ríki eru af fúsum og frjálsum vilja áfram
Indverskar konur meS hinn nýja jána Pakistanríkit■
í brezka ríkjasambandinu, en geta gengið úr því livenær sem þau
sjálf kjósa. Það, sem að líkindum hefði aldrei náðst með þvingun,
hefur nú komið eins og af sjálfu sér. Með dæmi sínu hafa Bretar
og Indverjar vísað þann veg, sem mennirnir liljóta að ganga,
eigi friður og eindrægni að fá að ráða í samskiptum þjóða
heimsins.
Sv. S.
Kvæöi Höllu Loftsdóttur.
Kvæðið Kom hann og söng, eftir Höllu Loftsdóttur, er Baldur Andrésson
hefur gert við lag það, sem birt er á næstu síðu, er alls 5 erindi og prentað
í Eimreiðinni árið 1941 (47. árg., bls. 144), og vísast til þess þar.