Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1953, Qupperneq 12

Eimreiðin - 01.04.1953, Qupperneq 12
Við þjóðveginn Úrslit alþingis- kosning- anna. 30. júní 1953. ^LDREI hafa úrslit kosninga til alþingis á íslandi orðið eins fljótt kunn og þeirra, er fram fóru sunnudaginn 28. júní 1953. Að sólarhring liðnum frá því að kjörfundum lauk voru úrslitin af öllu landinu kunn í meginatriðum. Kosningabaráttan var allhörð og blandin persónulegri áreitni að gömlum, en ekki góðum, ís- lenzkum sið. En nú er allt dottið í dúnalogn. Flokksforustan sú, er illa varð úti, sleikir sár sín og ber sig borginmannlega. Hin, sem hyggur sig hafa hækkað að áliti og atkvæðamagni, lítur nú með mildi á andstæðinginn og varpar öndu léttilega. Flokkarnif sex, sem baráttuna háðu, geta nú aftur litið hverir aðra, án þess að hella úr skálum reiðinnar, að minnsta kosti um stundarsakir. En nú eru stjórnmálaflokk- arnir í landi voru sex orðnir í stað fjögra, en ættu að réttu lagi að vera tveir. Þátttaka í þessum alþingiskosningum varð örlitlU minni en í þeim síðustu, árið 1949. Nú kusu 78.758 manns eða 87,4% þeirra, er á kjörskrá voru, en þá 89% kjósenda. Atkvæði skiptust þannig milli flokka, að Alþýðuflokkurinn fékk nú 12093 atkvæði, en 11937 atkv. árið 1949, Framsóknarflokkurinn 16959, en 17659 atkv. 1949, Sósíalistaflokkurinn 12422, en 14077 atkv. 1949 og Sjálfstæðisflokkurinn 28738 atkvæði, en hafði 28546 atkv^ í kosningunum 1949. Þingmannafjöldi þessara flokka verður nú þannig, að Alþýðuflokkurinn fær á þing 1 mann kjördæmakosinn og 5 uppbótarþingmenn, Framsóknarflokkurinn 16 kjördæmakosna þingmenn, Sósíalistaflokkurinn 2 kjördæmakosna og 5 uppbótar- þingmenn, en Sjálfstæðisflokkurinn 21 kjördæmakosinn þingmann- Við bætast 2 þingmenn frá hinum nýstofnaða Þjóðvarnarflokki, en enginn frá Lýðveldisflokknum, öðrum hinna tveggja nýju flokka. Sitja því 6 Alþýðuflokksmenn, 16 Framsóknarmenn, 7 Sósíalistaflokksmenn, 21 Sjálfstæðisflokksmaður og 2 Þjóðvarnar- flokksmenn, eða samtals 52 þingmenn, á næsta alþingi, ef út* reikningar flokkanna standast og Landskjörnefnd gerir þar enga breytingu á, en úrskurður hennar um uppbótarþingmenn er enh ekki fallinn, þegar þetta er ritað. Mörg voru þau mál — og sum ómerk —, sem flokkarnir deiIdu um í kosningunum. En stórmál voru einnig þeirra á meðal, °9 má nefna stjórnarskrármálið og landvarnirnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.