Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1953, Síða 46

Eimreiðin - 01.04.1953, Síða 46
f^œttir iim eríenJar lóhmenn tu' I. Rússneskar bókmenniir. Fáar þjóðir eiga eins stórfenglegar bókmenntir og Rússar. Eink- um skara þeir fram úr flestum öðrum í skáldsagnagerð. Rússneskar bókmenntir hefjast með kristnitökunni þar í landi á 10. öld. Fyrir þann tíma er aðeins að ræða um sagnir og munn- mæli, sem hafa varðveitzt á vörum alþýðunnar, óljósar og sundur- lausar að vísu, fram á vora daga. En eftir að Vladimir prins 1 Kænugörðum (Kiev) tók kristna trú, árið 988, opnaðist byzant- iskri menningu leið inn í Rússland frá Konstantinópel. Slafnesk tunga varð kirkjumál grísk-rómversku kirkjunnar í landinu, og að miklu leyti á því máli eignuðust kristnir menn í Kænugörðum sína fyrstu biblíu (sem kennd er við Ostromir). Frá Kænu- görðum breiddist kristnin óðfluga út suðvestur um héruð þau, sem nú heita Úkraína. Meðal fyrstu ritaðra bókmennta Rússa voru guðspjöllin, bækur kirkjufeðranna og ræður Ilarions í Kænugörð- um, frá miðri 11. öld. Ennfremur eru til rússneskir annálar frá 12. öld og rit eitt, ver- aldlegs efnis, Saga Igors og hernaðar hans, sem talið er eitt merkilegasta rit, sem til er frá miðöldum Evrópu. í Kænugörðum blómgvaðist menning um nálega tveggja alda skeið, sem stóð að ýmsu leyti framar því, sem gerðist annars staðar um þær mundir- En árið 1170 herjaði Andrey Bogoljubski, prins frá Suzdal, á Kænugarða, og upp úr því fluttist miðstöð rússneskrar menningar norður til Moskvu, en Kænugarðar og héruðin umhverfis þá borg komust undir yfirráð Póllands og Lithaugalands. En árið 1240 réðust Mongólar og Tatarar inn í Rússland, og eftir það jukust mjög áhrif frá Asíu í landinu. Ivan IV. Rússakeisari, sem kallaður var hinn grimmi (1530-— 1584), er talinn helzti rithöfundur Rússa á 16. öld, og bera bréf hans vott um mikla mælsku og stjórnkænsku. Kurbsky prins (1528—83), andstæðingur Ivans keisara, fékkst einnig við ritstörf
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.