Eimreiðin - 01.04.1957, Qupperneq 73
FRÁ NORÐUR-ÍRLANDI
145
Stormont.
stjóri hennar. Ekið var um Antrim og Down greifadæmi.
Hvarvetna á undirlendi var allt grösugt og gróðri vafið, en
fjöllin voru mörg nakin, eins og fjöllin heima, en gróður
teYgði sig allhátt upp eftir hlíðum annarra. Sveitabýlin, stór
°g smá, voru öll aðlaðandi, og víðast vel byggt og limgirð-
lngar milli akra, nema upp til fjalla. Þar voru steingarðar,
enda nóg af grjótinu. En hafizt hefur verið handa um að
þckja hlíðarnar skógi, þar sem nokkur jarðvegur er, og all-
Vlða getur að líta fögur belti ræktaðs skógar, en um þetta sér
Skógrækt ríkisins.
Mér fannst landið ákaflega fagurt, víðast vinalegt, en sums
staðar hrikalegt og stórfenglegt, og kom það mér óvænt. Nefni
eg þar til Þagnardal eða Dalinn þögla (Silent valley). í sum-
nm byggðum voru lághæðir, sem voru ræktaðar alveg upp á
k°]] __ Qg e£st ^ sumum voru íveruhús bændabýlanna, og hefur
svo verið frá fornu fari. Hafa írar til forna reist bæi sína þar,
sern sá vítt yfir, eins og landnámsmenn á íslandi. Ekið var
skammt frá hinu fræga Neagh-vatni (Lough Neagh), sem er
lnesta stöðuvatn Bretlandseyja og jafnvel allrar álfunnar, og
Slðar um hina frægu smáborg Downpatrick, þar sem Patrekur
e,gi. er kristnaði írland, var grafinn, að því er sagnir herma.