Eimreiðin - 01.01.1966, Page 89
guðríðar þáttur þorbjarnardóttur
77
byggja landið, ef þeir mætti það.
Karlsefni bað Leif húsa á Vín-
landi, en hann kvaðst ljá mundu
húsin, en gefa eigi.
Síðan héldu þeir í haf skipun-
um og komu til Leifsbúða með
heilu og höldnu og báru þar upp
húðföt sín og farangur. Þeim bar
hrátt í hendur mikil föng og góð,
því að reyður var þar upprekin,
bæði mikil og góð, fóru til síðar
°g skáru hvalinn, skorti þá eigi
ntat. Stunduðu menn nú hvers
konar veiðar og varðveizlu búpen-
ings og bjuggust vel um fyrir vet-
urinn.
16. BÚSKAPUR í VÍNLANDI.
í Vínlandi bjuggu þau Guðríð-
ur og Karlsefni með fólk sitt og
fénað í þrjú ár og búnaðist hið
bezta, og þar fæddist Snorri, sonur
þeirra, þegar hið fyrsta misseri, er
þau bjuggu þar. Þau urðu fljott
vör við frumbyggja landsins, senni-
lega Indíána, er íslendingar
nefndu Skrælingja. í fyrstu áttu
innflytjendur nokkurn veginn frið-
samleg kaupskipti við þessa villi-
tnenn og fengu hjá þeim verðmæta
skinnavöru fyrir lítið gjald, en
brátt fór þó að síga á ógæfuhlið,
sem endaði með bardögum og
hlóðugum manndrápum af beggja
hálfu, auk þess sem sífelld slags-
mál voru rnilli innflytjenda sjálfra
l't af konunum, þar sem 12 karl-
menn voru um hverja eina. End-
aði þetta með því, að leiðangurinn
leystist upp og sneri aftur til heim-
kynnanna eftir þriggja ára land-
námssetu og búrekstur í Vínlandi.
17. KARLSEFNI OG GUÐRÍÐ-
UR í NOREGI.
Nú er að segja frá því að Karls-
efni býr skip sitt og sigldi í haf.
Honum fórst vel og kom til Nor-
egs með heilu og höldnu og sat
þar um veturinn og seldi varning
sinn og hafði þar gott yfirlæti og
þau bæði hjón af hinum göfug-
ustu mönnum í Noregi, en um vor-
ið eftir bjó liann skip sitt til ís-
lands.
18. KARLSEFNI OG GUÐRÍÐ-
UR KOMA TIL ÍSLANDS.
Nú siglir Karlsefni í haf og kom
skipi sínu fyrir norðan land, í
Skagafjörð, og var þar upp sett
skip hans um veturinn. En um
vorið keypti hann Glaumbæjar-
land og gerði bú á og bjó þar
meðan hann lifði og var hið mesta
göfugmenni, og er margt manna
frá honum komið og Guðríði konu
hans og góður ættbogi.
En þá er Karlsefni var andaður,
tók Guðríður við búsvarðveizlu og
Snorri sonur hennar, er fæddur var
á Vínlandi. Og er Snorri var kvong-
aður, þá fór Guðríður utan og
gekk suður til Rómar og tók af-
lausn og kom út aftur til bus
Snorra sonar síns og hafði hann
þá látið gera kirkju í Glaumbæ.
Síðan gerðist Guðríður nunna og
einsetukona og var þar meðan hún
lifði.
Snorri, sá er fæddur var í Vín-
landi sonur Guðríðar og Karlsefn-
is, átti son, er Þorgeir hét; hann
var faðir Ingveldar móður Brands
biskups. Dóttir Snorra Karlsefnis-
sonar hét Hallfríður; hún var kona