Iðunn - 01.02.1885, Síða 5
67
Hagnýting náttúrukraftanna.
rœðu, er hann hélt á fundi gasgerðarmanna vorið
1882. Hann talar um þann ómaka og kostnað, er
fylgir því, að fœra kolin upp úr námunum, hlaða
þeim á vagna og flytja þau til borganna ; að lokum
verði að flytja þau á hvert heimili, og þar sé órýmindi
að þeim, óþrifnaðr og loftspell. Síðan leggr hann
það til ráðs, að kolunum sé breytt í gas niðr í nám-
unum eða við námumunnana, og gasið megi síðan
flytja í allar áttir bæði til heimilisþarfa og handa
verksmiðjunum. Gasið mundi eigi verða svo miklu
dýrara enn kolin, að eigi þœtti til vinnauda að kaupa
það, er það héfir svo marga kosti um fram kolin ;
það er þokkalegasta eldsneyti, mjög eldfimt, tempr-
anlegt og reykjarlaust. jpar sem kolanámur eru svo
langt frá bœjum, að of dýrt þykir að leggja þangað
gasrennur, mætti hafa óhreinsað gas og ódýrt handa
bœjabúum, ogáþann hátt mætti spara kostnaðar-
sama kola-flutninga. þetta mundi heldr í hag gas-
gerðarmönnum, þótt þeir jafnvel þyrfti að leggja
gasrennur, því að margir mundi kaupa gas til elds-
Qeytis, þótt eigi þyrfti að hafa gas til ljósa, er raf-
magnsljós eru upp tekin, og hætt er að nota gas,
olíu og tólg til ljósmatar.
Herbergjahitun mættibœta með því, að safna hit-
anum saman bæði í hverju stöku húsi, svo og í heilli
borg eða borgar hluta. þar sem tuttugu manns eru
f heimili, þarf að tiltölu minna til að kosta enn þar
8em eru fimm menn í heimili. Gufuvél, sem hefir
hundrað liesta afl, kostar minna enn tíu gufuvélar,
®r hver hefir tíu hesta afl, og ef ég kaupi 100 000
flund kola, kostar livert pund minna', enu ef ég