Iðunn - 01.02.1885, Side 8

Iðunn - 01.02.1885, Side 8
70 Hagnýting n&ttúrukraftanna. geta komið að góðu haldi, ef beitt væri við það raf- magni. Enn rafmagn kunna menn æ betr og betr með að fara. Að lokum kemst Le Bon svo að orði um gufuvél- ina, þótt fjarmæli muni þykja : »Ég vona, að þetta óliðlega verkfæri verði að tutt- ugu árum liðnum hvergi til nema á gripasöfnum meðal steinvopna fornaldarmanna«. Hann þykist vita fyrir víst, að áðr enn tuttugu ár sé liðin, verði fundin ráð til að nota að fullu hita- megin kolanna. Thurston er maðr nefndr. Hann hefir ritað »Sögu gufuvélarinnar*. Hann fylgir fram sama máli. A fundi, er mannvirkjameistarar héldu eigi als fyrir löngu í Norðr-Ameríku, sagði hann svo um kolin: Hér mun eigi annað ráð vænna, enn að breyta kola- efninu í rafmagn á sama hátt og zink breytist í Galvans-súlurmi, og þarf þá eigi að hafa gufuvélar eða gasvélar til að leiða fram kraftinn. Annar frægr mannvirkjameistari, er Reese er nefndr, studdi rœðu hans og bar upp tillögu um, hversu fara mætti að því, að breyta kolaefninu. Ilann sagði, að eigi þyrfti annað enn að sýra kolaefnið, enn það mætti gera með því, að geyma það á svölum stað í loft- heldu keri. Ef þess yrði auðið, þá mætti fá 12 milíónir fetpunda1 úr einu steinkolapundi, og mundi þá dragast til muna 90—95 hundruðustu hlutir af eldsneytinu. f>á mundi gufuvélarnar eigi sjást framar. Rafmagn það, er fá mætti með seinvirkri i) Fetpund er það afl, er þarf til að lyfta einu pundi ufl® fethtéð.

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.