Iðunn - 01.02.1885, Síða 12
74 Hagnýting náttúrukraftanna.
gera, að fá, iðnaðarmönnum um allan heim það afl í
hendr, að þeir verði jafnfœrir iðnaðarmönnum ú
Englandi og í Norðr-Ameríku.
Nú er að hverfa að því, hverja náttúrukrafta megi
nota í stað steinkolanna. Vér munum drepa hér á
suma þeirra, og teljum vér fyrsta þá krafta, er sízt
eru líkindi til að nota megi, og þá, er örðugast er við
að ráða. Að lokum munum vér tala um' vatnsafl í
ám og fljótum, einkuru afl forsanna. það afl ætlum
vér líklegast til að koma að notum í stað kolanna,
eftir því sem raun hefir borið.vitni um á síðustu ár-
um.
Svo vér tínum flest til, skulum vér fyrst nefna
eitt atriði, er um er ritað í ensku blaði, sem heitir
»The builder#. þar er talað um, að nota megi afl
það, er kemr af ruggi skipa á hafi úti. jpótt nota
mætti þetta afl, þá yrði það aldrei að góðu liði; því
verðr eigi beitt annarstaðar enn á skipum, og þó
misjafnlega. þetta afl hefir og aldrei verið notað,
enn margir þekkja það; það veldr sjósóttinni, enn
hún er að vísu talin heilsumerki. I blaði því, er
vér nefndum, er talað um, að láta afl þetta þrýsta
saman lofti í hylkjum, er vera skulu niðr í skipinu,
enn þetta þéttiloft á að hreyfa rafmagnsvélar, er
þrýstingunni léttir. Eafmagnsvélarnar eiga að
kveykja ljós og lýsa yfir skipið, og þyrfti þá eig>
að hafa gufuvél til að hreyfa þær, svo sem venja er
til. þetta hrœringarafl gæti og komið að notum (l
seglskipum. Skipin mundu riða minna, því að þétti-
loftið yrði nokkurskonar seglfésti. þá er hvast
væri, mætti safna þéttilofti í kerin, til að hafa nceg'
an forða nær sem lygndi.