Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Side 16

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Side 16
142 Tímcirit lögfrœöinga æðra stjórnvalds, þótt slíks kærustigs væri enn kostur. A. m. k. sýnist aðalreglan hljóta að verða sú, að því stjórn- valdi beri ekki kæruaðild.1) Skattanefnd eða formaður skattanefndar gæti t. d. eftir því ekki skotið úrskurði yfir- skattanefndar til ríkisskattanefndar. Tvímælis getur orkað, hvort æðra stjórnvald á að gæta reglna um kæruaðild ex officio, eða hvort það því aðeins á að taka þá spurningu til athugunar, að krafa í þá átt komi fram. Þess er að gæta, að stundum — og reyndar oft — er enginn aðili beint til viðurmælis. Kærandi hefur þar ekki beinan gagnaðila. 1 öðrum tilvikum er um venjulega aðilastöðu að tefla, þ. e. sakaraðili bæði sóknar- og varnar- megin. Andmæli um kæruaðild gætu þar hæglega komið frá gagnaðila. Meginstefnan virðist samt hljóta að verða sú, að reglna um kæruaðild sé gætt ex officio. Spurningin unikæruaðild hefur að sjálfsögðu enga raun- hæfa þýðingu, þegar æðra sett stjórnvald hefur heimild til að breyta eða kalla aftur ákvörðun lægra setts stjórnvalds, án þess að nokkur kæra liggi fyrir. Þar getur kæra, frá hverjum sem er, komið því til leiðar, að ákvörðun sé tekin til endurskoðunar. Slík heimild æðra stjórnvaldi til handa, myndi einmitt oft vera fyrir hendi, þegar kærurétturinn er aigerlega ólögákveðinn, en þó engan veginn alltaf. Sett lög geta og geymt ákvæði um kæruheimild einstaklinga og um skyldu stjórnvalds til að endurskoða að eigin frum- kvæði gerðir lægra settra stjórnvalda, sbr. t. d. skattal. nr. 6/1935, §§ 38 og 40 annars vegar og §§ 39 og 41 hins vegar. VI Kæranleiki stjórnvalds ákvörðunar, einn út af fyrir sig, getur ekki frestað réttaráhrifum hennar. Gildir það, hvort sem kærufrestur er sérstaklega ákveðinn í lögum eða ekki. Að því leyti til gegnir sama máli um ákvarðanir stjórn- valda og dómstóla, því að áfrýjanleiki dóma frestar að jafn- aði ekki verkunum þeirra. 1 Sbr. P. And’orscn, bls. 515 og Wcslerberg í F. T. 1946, bls. 1-23 og 79-106.

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.