Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Blaðsíða 58

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Blaðsíða 58
184 Tímarit iögjroeSinga. efni, að þau hafa eignazt íbúðarhús. Innanstokksmuni sína hafa þau aukið og endurbætt. Nokkra inneign eiga þau í sparisjóði og bifreið hafa þau eignazt o. s. frv. Engar tölur eru á því, hvað annað þeirra hefur lagt til og hvað hitt. Eóndi svarar fyrir bú þeirra út á við, en konan stjórnar innan húss, alveg eins og verið hefur lengstum. Engin hjú- skapareign hefur orðið til og verður ekki til. Með þeim er alger sameign, algert helmingafélag, eins og verið hefði fyrir lög nr. 23/1920. Engar sérskuldir, heldur eingöngu samskuldir. Hjúskapareign kemur ekki til greina heldur, eða sérskuldir, þegar búi þeirra er skipt. Skuldir eru greiddar af félagsbúi þeirra, og því er síðan skipt milli þeirra eða erfingja þeirra. Álcvæði laga nr. 20/1923 um hjúskapareign hjóna hafa ekki komið til greina og munu ekki gera það. Lagafyrir- mæli, sem ekki hafa nokkurn bakhjarl í veruleikanum, hljóta að verða dauður bókstafur frá upphafi til enda. Af því að slíkra laga gætir aldrei raunverulega, má ef til vill kalla rangt að nefna þau réttarleif. En þau hafa þó verið birt og gefin út, eins og önnur lög, og til þess hefur verið ætlazt, að þeim yrði fylgt. Að því leyti verða þau leifar eða vitni um tilætlun löggjafans, sem að vísu komst aldrei í framkvæmd. Fyrirmælin um hjúskapareign eru hugarfóstur ágætra lögfræðinga á Norðurlöndum og eru þaðan hingað komin. Takmark þeirra var það, að með hjónum yrði algert jafn- ræði um eignir þær, sem tengdar eru hjónabandinu, en veruleikinn hefur sýnt óveruleika lagafyrirmælanna, ef svo mætti segja. Þau eru einungis gott vitni um góðan vilja lagasmiðanna, en varla meira. 4. Ágætt dæmi um réttarleif eru ákvæði VII. kafla sigl- ingalaganna um sjólán (bodmeri). Þau eru, eins og flest önnur ákvæði siglingalaganna, þýdd úr dönsku siglinga- lögunum frá 1892. Fyrr á tímum mátti vera nauðsynlegt, að skipstjóri tæki lán á ferð sinni til nauðsynja skipseig- anda eða farmeiganda varðandi ferðina. En nú er sú þörf löngu horfin úr sögunni vegna breyttra aðstæðna, enda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.