Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Blaðsíða 57
Réttarlcifar.
183
urra skrifa eða skilmála, nema það sé beinlínis gert sér-
eign. Flest hjónaefna eru snauð að kalla, en fjárhagur
þeirra fer síðan eftir fjárgæzlu þeirra og heppni. Það, sem
þau kunna að efnast eða fátækjast, kemur þá jafnt báðum
til auðgunar eða efnarýrnunar. Engin skrá hefur verið
gerð né verður gerð um hjúskapareign hvors um sig. Tökum
algeng dæmi. Hjón setja bú, eru leiguliðar á sveitajörð.
Þau eiga þá ígangsklæði sín og rúmföt. Svo eiga hvort um
sig dálítið fé í sparisjóði. Þau taka við kúgildum með jarð-
næðinu að fornum vana. Fyrir sparifé sitt kaupa þau sam-
eiginlega 2 kýr, 3 hesta og nauðsynlegustu búsáhöld. Svo
tekur bóndi lán í sparisjóði og kaupir fyrir það 20 ær. Þeim
búnast svo vel, að eftir 10 ár hafa þau fest kaup á jörðinni
og bæta hana svo, að nú framfleytir hún 8 kúm og 200 ám,
auk nauðsynlegra hrossa. Bústofn þenna eiga þau nú skuld-
laust. Til jarðabóta hafa þau fengið lögmæltan styrk úr
ríkissjóði. Síðan auka þau stöðugt bústofn sinn og halda
áfram að bæta jörðina, byggja upp hús hennar, afla nauð-
synlegra búvéla o. s. frv. Allt þetta er gert með sameigin-
legum dugnaði og ráðdeild. Og auðvitað er ekki einn stafur
um það, hvað er fengið fyrir atbeina eða fé annars þeirra
og hvað fyrir atbeina hins, enda er það ómögulegt. Hér
verður aldrei nein hjúskapareign heldur venjuleg sameign
hjónanna. I framkvæmd verður þetta svo, að bóndi fer
með forræðið út á við, en konan sinnir bústjórn inn á við.
Þegar þau skipta með sér búi eða skipt er eftir þau, þá
verður engin spurning um skuldir eða eignir annars hvors
þeirra, heldur samskuldir og sameign, alveg eins og var
fyrir lög þessi.
Sama máli gegnir um búrekstur hjóna í kaupstöðum og
kauptúnum. Hjón byrja búskap með engum efnum öðrum
en þeim, sem í innanstokksmunum og ígangsklæðum liggja.
Innanstokksmunirnir eru oftast fengnir fyrir framlag
beggja að einhverju leyti. Engin tala er á því höfð, 'hvað
hvort leggur til, og því síður er nokkur skrá gerð yfir hjú-
skapareign hvors um sig. Þau æxla fé úr örbyrgð. Eftir
10—20 ár hafa þeim fyrir tilverknað beggja vaxið svo