Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 22
en hinn, nokkuð boginn og staurliður um hné. Taldi lækn-
irinn, að þetta ástand myndi haldast óbreytt að mestu,
þótt hugsanlegt væri, að einhver smábreyting kæmi í hné-
liðinn, er tímar liðu.
Með tilliti til vottorðs þessa og annars, er fram kom,
taldi héraðsdómari bætur hæfilega ákveðnar í einu lagi
kr. 5.000.00, og að auki var dæmdur sjúkrakostnaður.
Hæstiréttur dæmdi sjúkrakostnað að fullu, en með hliðsjón
af því, að drengurinn, sem var á 11. ári, sýndi mjög mikla
óvarkárni með því að hlaupa á bifreiðina, þóttu bætur
vegna meiðslanna hæfilega ákveðnar kr. 3.000.00.
Hrd. 20. febrúar 1935. VI. bindi.
Að kvöldi 17. ágúst 1931 var vélbátur staddur í Krossa-
nesi til löndunar. Ljóslaust var á bryggjunni, en unnið
um nóttina. Skipverjar kvörtuðu við stýrimann um erfið
og hættuleg vinnuskilyrði. Brá hann við og fór að leita
uppi forsvarsmann verksmiðju þeirrar, er við aflanum
tók. Á leið sinni féll hann niður í tóma síldarþró. Meiddist
hann svo mikið, að hann varð alla ævi örkumla maður,
eins og í dóminum segir. Stýrimaður krafði verksmiðju-
eigandann bóta, 50.000 króna ósundurliðað. Full fébóta-
ábyrgð var dæmd í héraði. Hæfilegar skaðabætur þóttu
kr. 15.000.00, og var þá tekið tillit til þess, að slasaða
höfðu verið greiddar örorkubætur úr slysatryggingarsjóði,
kr. 5.100.00.
Hæstiréttur staðfesti óskoraða fébótaábyrgð. Um mat
bótanna segir i dómi Hæstaréttar: „Þykja bætumar hæfi-
lega ákveðnar, eins og héraðsdómarinn hefur gert, með
tilliti til þess, að slasaði var maður enn á góðu reki, þegar
hann varð fyrir slysinu, að hann var skipstjóri eða stýri-
maður á fiskiskipum, að hann var ómótmælt talinn hafa
verið bæði mikill þrekmaður, aíburða sjómaður og sér-
staldega heilsuhraustur“. Engar upplýsingar að finna í
dóminum um aldur, hagi, undanfarandi tekjuöflun o. s.
frv.
56
Tímarit lögfræðinga